Menntamál


Menntamál - 01.04.1972, Blaðsíða 13

Menntamál - 01.04.1972, Blaðsíða 13
Menn gerðn sér snemma grein fyrir áhrifa- mætti sagna á börn. Með því að segja barni sögn mátti hafa áhrif á hegðan þess og siðferðisvitund. Það er álitið, að hinar fornu dæmisögur hafi mikið verið notaðar í þessum tilgangi, enda fluttu þær venjulega einhvern siðaboðskap, sem ætlað var að hafa áhrif á þann, sem hlustaði. I dæmi- sögunum kemur fyrst fram hugmyndin um dýr sem aðalpersónur. Þau eru látin tala mannamál Litlum börnum flnnst yfirleitt ekkert athugavert við að dýr tali hiannamál í sögum og hagi sér eins og menn. Þessi mynd er úr bókinni „Björnefar kommer hjem“ eftir Else Holmelund Minarik. Og jafnvel hugsa eins og menn. Þessi hugmynd hefur haft sterk áhrif á seinni tíma barnabók- nrenntir, ekki sízt smábarnabækurnar. Börn á leikaldri (frá 11/^—7 ára) liafa frjótt ímyndunar- afl og eiga auðvelt með að lifa sig inn í söguna. Flestum þeirra finnst ekkert athugavert við, að dýr tali mannamál í sögum og hegði sér jafnvel eins og menn. Þeir, sem umgangast lítil börn að staðaldri, kynnast því brátt, hve fíkin þau eru í að hlusta á sögur. Áður fyrr var lítill greinar- munur gerður á efni sagna fyrir lítil börn og stór, en með vaxandi skilningi og þekkingu á sálarlííi barna gerðu menn sér grein fyrir nauð- syn jress, að sögurnar yrðu að hæfa aldri og þroska barnsins. Árið 1862 kom út í París lítil myndabók ætluð yngstu börnunum eftir teiknarann Lorenz Froe- lich, sem var Jrekktur fyrir teikningar sínar af börnum. Þessi litla myndabók bar nafnið „Svona líður dagurinn hjá Lísu litlu“, og var hún upp- hafið að sérstakri gerð myndabóka, sem lýstu einföldum hlutum og athöfnum úr daglegu lífi barnsins. Myndirnar skýrðu sig að mestu leyti sjálfar, en oft fylgdi með stuttur og einfalclur texti. Þessi hugmynd, að láta börnin endurþekkja hluti og athafnir úr daglega lífinu, er enn þann dag í dag notuð, þegar byggja skal upp mynda- bók fyrir yngstu börnin, 1—2 ára. Erlendis er mik- ið gelið út af slíkum bókum. Þær beztu eru jafnframt gerðar úr þykkum pappaspjöldum eða öðru sterku efni, sem ekki er auðvelt að rífa í sundur. Þó að þessar fyrstu bækur barnsins séu textalausar, geta Jrær átt mikinn Jrátt í að örva málþroska Jress. Sá, sem skoðar myndirnar með barninu, talar við Jiað og örvar Jjað til Jtess að tala. Hann spyr t. d.: Hvað er Jjetta? Barnið Jrekk- ir ef til vill boltann sinn á myndinni og svarar fagnandi: Bolti-bolti. Smám saman bætist við einfaldur sögujnáður, Jrar sem endurtekningar skipta oft rniklu máli. Mörg börn á aldrinum 2y2—3 ára eiga auðvelt með að læra slíkar sögur utanað. Þau gæta Jress vel, að sá, sem les fyrir þau, sleppi engu úr eða breyti orðalagi. Þau vilja heyra sömu söguna aftur og aftur, og minni Jæirra þjálfast. Síðan smálengist texlinn og sögupersónum fjölgar. Um 3—4 ára aldur þykir börnum ákaflega garnan að hlusta á sögur af öðrum litlum börnum, sem eru lík Jreim sjálfum. Eins eru Jrau mjög hrifin af dýrasögum. Sögur og ævintýri, Jrar sem dýr eru aðalpersónur, eru yfirleitt í miklu eftirlæti hjá börnum allan leikaldurinn. Eins og áður er sagt, eiga börn á Jressum aldri auðvelt nteð að lifa sig inn í sögurnar. Þau gera ekki skýran greinarmun á Jrví, hvað er raunveru- legt og hvað er óraunverulegt. Þekking Jteirra á raunveruleikanum er enn ekki orðin það mikil, að þeim finnist nokkuð athugavert við J)að, að hægt sé að leysa vandann með töfrabrögðum. Þau trúa hálfvegis á galdranornir og álfkonur ævintýranna og önnur skrýtin fyrirbrigði, sem MENNTAMÁL 71

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.