Menntamál


Menntamál - 01.04.1972, Blaðsíða 44

Menntamál - 01.04.1972, Blaðsíða 44
tónlistin búi yfir ákveðnum „alhæfingarkrafti", sé miðlun hennar þannig byggð upp, að takmörk og markmið séu ætíð höfð skýrt í huga. Eitt af meginmarkmiðum tónlistarkennslu í skólum er, að nemandi læri að beita rödd sinni á eðlilegan hátt í tali og söng. Þetta felur í sér, að öndun sé eðlileg, framsögn og raddbeiting skýr. Um skýra framsögn get- ur varla verið að ræða, nema öll hljóð séu rétt borin fram, og þar að auki að nemandinn skilji textann sem sunginn er. Á þessu sést, að tónlistarkennslan, eða sá þáttur hennar sem kallast söngkennsla, nær langt inn á svið móðurmálskennslunnar. Hún nær enn lengra inn á inni- haldslegt og tilfinningalegt svið mæits máls, ef haft er í huga, að túlkun orða (texta) er einn veigamesti þáttur í söng, innihald, þ. e. boðskapur orðanna, verður lifandi og sambandshæfni hans eykst við það, að laglínan ber orðin uppi, flytur þau á milli. Allmikið ber á því að nemendur læri kvæði í skólum, án þess að skilja inntak orðanna eða textans í heild. Hér virðist vera um vélrænan utanbókarlærdóm að ræða, sem hefur það eina takmark að láta nemandann læra utanað — óháð skilningi á því sem hann lærir. Hið túlk- andi hlutverk söngsins ætti því að hafa áhrif í gagnstæða átt, þ. e. vinna á móti vélrænni notkun mælts máls og blása merkingu og lífi í orðin og túlka boðskap þeirra. Það er stigsmunur, en ekki eðlismunur á tali og söng. Hvort tveggja byggist á réttri öndun. Það er ótrúlegt og ógnvekjandi, hve mörg börn, sem eru að hefja skóla- göngu, eru með öndunarkvilla. Þarna má mörgu um kenna, m. a. þeirri staðreynd, að fyrirbæri eins og heil- brigð öndun er ekki óumbreytanleg stærð, sem er óháð breyttum lífsvenjum manna, frekar en mengunin er. Margt barnið, sem situr í skólastofunni, er hlaðið spennu og ber ýmis einkenni taugaveiklunar með sér. Þegar barnið lærir að anda eðlilega (þótt ótrúlegt megi virðast, verður þetta að lærast í mörgum tilvikum, hin eðlilega öndun ungbarnsins virðist oft fara forgörðum, þegar „menningin" mótar það), þá losar þessi rétta öndun um líkamlegar og andlegar hömlur og barnið á auðveld- ara með að tjá sig á frjálsan og eðlilegan hátt. Þetta eru langt frá því fjarstæðar kenningar; það sést einna bezt á því, að margir læknar beita öndunaræfingum og þjálfun reglubundins andardráttar á sjúklinga, ekki bara sjúklinga, sem þjást af iungnasjúkdómum, heldur einn- ig á taugasjúklinga. Það virðist greinilegt og augljóst, að yfirfærsluáhrif tónlistar eru ekki einungis bundin við móðurmál og líkamlega vellíðan. Kerfisbundin þjálfun í hrynjandi (hljóðfalli) og tileinkun á innbyrðis hlutfalli hljóðfalls- sniða hefur áhrif á móttækileika nemenda fyrir stærðar- hlutföllum, en það hefur áhrif á hliðstæð vandamál í stærðfræðinni. Það sama á við um skynjun forms og þjálfun tilfinningar og skilnings á innbyrðis hlutföllum í formi, samanburði formeinda, að finna líka eða sameigin- lega þætti og að aðgreina ólíka þætti. Með öðrum orðum: kerfisbundin og stighækkandi þjálfun í formskynjun virðist hafa jákvæð yfirfærsluáhrif á stærðfræðiskynjun nemenda. Lengi mætti telja upp meðæfingaatriði í tónlistarnámi, sem bein áhrif hafa á vitsmunalega þætti nemenda. Það liggur í augum uppi, að minnið þjálfast mjög við það, að sönglög og lög á hljóðfæri eru lærð utanað, og vel upp- byggð hljóðfallsþjálfun höfðar einnig sterkt til minnis- ins. Einbeitingarhæfileikar nemenda þjálfast mjög við tónlistarnám. Og síðast en ekki sízt þjálfast aðgreiningar- og sameiningarhæfileikar nemenda. Að hlusta á tónverk, aðgreina mismunandi hljóð og hljóðfæri, svo og blæ- brigði hljóðfæra, að aðgreina hljómasambönd, að mynda rökræna heild úr hinum ýmsu þáttum tónlistar, krefst mikils aga eyrans og hinna ýmsu vitsmunalegu þátta, sem taldir voru upp hér. Fram til þessa hefur aðallega verið rætt um hinn vits- munalega þátt tónlistarnáms. Það er síður en svo, að ég vilji einangra þennan þátt frá tilfinningasviðinu; bæði sviðin eru saman-tvinnuð og órjúfanleg heild. Hitt er það, að erfiðara er að koma orðum að hinum tilfinningalega þætti tónlistar, því að hann er ákaflega persónubundinn og erfitt að meta hann á hlutlægan hátt. Við vitum, að menn hlusta á tónlist á mismunandi vegu, einn hlustandi leitar að „boðskap", sem annar verður ekki var við, ákveðin myndræn tengsl koma til sögunnar hjá mörgum við hlustun, sumir sjá jafnvel ákveðna liti eftir því í hvaða tóntegund er verið að spila. Enginn getur gefið forskrift að því, hvernig ætti að hiusta á tónlist; þau tilfinninga- legu verðmæti, sem skapast við að hlusta á tónlist og tjá sig á músíkalskan hátt, eru háð persónueinkennum ein- staklingsins og mörgum öðrum breytum. Þó erfitt sé að meta vísindalega þá tilfinningaauðgun, sem á sér stað við tónlistariðkun eða hlustun, þá munu þeir menn, sem fengizt hafa við þessar athuganir á undanförnum árum, vera sammála um, að slík auðgun eigi sér stað. Gegnir tónlist því miklu og nauðsynlegu hlutverki í þá átt að skapa sálrænt jafnvægi hjá börnum í umhverfi, sem íþyngir ungu og yngstu kynslóðinni á einhliða hátt, með kröfum um vitsmunalega beitingu við lausn verkefna. Músíkölsk iðkun er eðlilegust í söng, þar sem söngur- inn er bein tjáning án tæknilegra milliliða eins og hljóð- færi eru. Hve sterk þörfin til músíkalskrar og hreyfingar- tjáningar er hjá ungum börnum, má helzt sjá á þvf, að ósjaldan syngja ungbörn áður en þau tala, og hreyfing- arþörfin er ein af sterkustu hvötum ungbarns. Þó ég vilji hér forðast að nota orðið frumtjáningu í sambandi við söng, er samt Ijóst, að hin óorðbundna tjáning, sem felst í söng ungbarnsins, er aðferð til þess að ná tilfinn- ingalegu sambandi við umheiminn og gegnir í því efni sama hlutverki og hið mælta mál síðar meir. Þessi músíkalski tjáningarmáti er ómeðvitaður, en hæfileikarnir til að beita honum týnast, ef ekkl er ýtt MENNTAMÁL 102

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.