Menntamál


Menntamál - 01.04.1972, Blaðsíða 11

Menntamál - 01.04.1972, Blaðsíða 11
mál né okkar eigin tungu, ekki einu sinni hand- hæg uppsláttarrit um land okkar, þjóð og sögu, sem við gætum fengið í hendur barni á fyrstu ár- um skyldunámsins. Megnið af barnabókaútgáfu okkar miðast við skemmtilestrarefni, æsingabæk- tir, þar sem barnið gleymir sér um stund í óraun- verulegu ævintýri. Þar eru gjarnan börn og hund- ur, sem lenda í höndum glæpamanna og koma þeim í hendur lögreglunnar fyrir frábæra og yfirnáttúrulega snilli sína. Tímarit fyrir börn og unglinga eru sárafá, en þó verður að geta sérstaklega Æskunnar, sem um langan aldur hefur gert börnum þessa lands ómetanlegt gagn. Hvað má gera til úrbóta? Þetta hefur nú orðið löng raunatala, enda varla von á öðru, þegar umræðuel'nið er einn vanræktasti þáttur í fjölbreyttri menningarstarf- semi, sem á sér stað hér á landi. En ekki dugir að mála ástandið of dökkum litum, án þess að einhverjar tillögur tii úrbóta fylgi. Ég varpa hér fram nokkrum atriðum mönnum til íhugunar °g í von um, að margar fleiri tillögur eigi eftir að koma fram. É Komid' verði á nejnd til pess að skrifa um- sagnir um þecr barna- og unglingabœkur, sern á markaðnum eru í dag, svo og þeer beekur, sem koma á rnarkaðinn i framtiðinni. í þess- ari nefnd sitji kennari, bókavörður, útgefandi og rithöfundur. Aðalverkefni þessarar nefnd- ar verði að velja og skrifa umsagnir um þær bækur, sem myndað gætu stofninn í íslenzk- um skólabókasöfnum. Niðurstöður þessarar nefndar verði birtar í blöðum eða sem sjálf- stætt rit til aðstoðar foreldrum, skólabóka- vörðum og kennurum við bókaval lianda börnum. 2. Nefndin velji erlendar beekur, sem beztar þykja til þýðingar eða staðfeeringar. Trúlega er þannig hægt smám saman að losa markað- inn við það allra lélegasta af þýddu efni og bæta úr því ófremdarástandi, sem ríkir í út- gáfu barna- og unglingabóka hér á landi. 3. Kornið verði á almennu samstarfi milli sömu stétta til að reeða útgáfuþörfina og finna, hvernig heegt er að beeta úr þar, sem skórinn kreppir mest. Skólabókasöfnin geta einmitt stutt mjög að útgáfu góðra bóka með því að vera sjálfsagður kaupandi alls þess bezta, sem á boðstólum er. 4. Stofnaður verði sjóður til minningar um ein- hverja af okkar beztu barnabókahöfundum, eins og t. d. Sigurbjörn Sveinsson og Stefán Jórisson, og varið fé úr þeirn sjóði til verð- launa fyrir beztu islenzku barnabóltina, sem út keemi á hverju ári. íslenzkir barnabóka- höfundar hafa verið hornrekur allt of lengi, og yrði slík viðurkenning þeim áreiðanlega hvatning til frekari dáða. Þegar amma hætti að vera á heimilinu og segja börnunum sögur, varð eitthvað að koma í staðinn. Foreldrarnir eru of önnum kafin til þess að geta sinnt fróðleiks- og skemmtanaþörf barna sinna. Sjónvarpið er ekki ætlað börnum nema að litlu leyti, og sama er um útvarpsefni. Bókin verður því að vera athvarf barnsins í um- róti 20. aldarinnar, og þörfin fyrir þann trygga vin, sem bókin er, hefur ef til vill aldrei verið meiri en nú. Gagn og gaman og frásagnir af geim- ferðum mannsins eiga heima lilið við hlið í bóka- safni barnsins í dag. Barnið er að vísu áfram

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.