Menntamál


Menntamál - 01.04.1972, Blaðsíða 34

Menntamál - 01.04.1972, Blaðsíða 34
Stjórnarþing Norræna kennarasambandsins haldið 9.—10. september 1971 í Reykjavík ♦-------------------------------------------------- Norræna kennarasambandið var formlega stofnað 1968 í Stokkhólmi, en áður var sú venja komin á, að formenn og starfsmenn kennarasamtakanna á Norður- löndum kæmu saman ár hvert og ræddu sameiginleg málefni og viðhorf í fræðslu- og skólamálum þjóða sinna. Við formlega stofnun sambandsins var ákveðið, að formaður þess væri kosinn til eins árs í senn og frá því landi, sem næst skyldi sjá um þinghaldið. Síðastiiðið skólaár, 1970—71, féll það í hlut Skúla Þorsteinssonar formanns S.f.B. að gegna formannsstöðu, og ritarastarfið var falið Ólafi S. Ólafssyni, formanni L.S.F.K. Hlutverk Norræna kennarasambandsins er fyrst og fremst að miðla gagnkvæmum upplýsingum og reynslu um fræðslu- og skólamál og stöðu kennara í viðkom- andi löndum. Að sjálfsögðu hefur það ekki ákvörðunar- vald til annarra hluta en þeirra, sem snerta stjórn þess og stjórnarþing. Hins vegar þykir auðsætt, að gagn- kvæmar upplýsingar og umræður forystumanna kenn- arasamtakanna um sameiginleg viðfangsefni hafi í för með sér þróun til samræmingar og samsvörunar í mál- efnum kennara á Norðurlöndum, þegar tímar líða. Kennarasamtökin á Norðurlöndum, sem standa að baki Norræna kennarasambandinu, hafa um hundrað og fimmtíu þúsund manns innan vébanda sinna. Gera má því ráð fyrir, að hér hafi skapazt grundvöllur að norrænu samstarfi, sem festir víðfeðmari rætur í reynd en faguryrtar og frómar óskir yfirvalda fá áorkað. í frásögnum af þessu þingi kveða blöð norrænu kenn- arasamtakanna einum rómi um virðulegar, hlýlegar og rausnarlegar móttökur og ánægjulega dvöl komumanna á íslandi meðan á þinghaldi stóð. Skúli Þorsteinsson og Ólafur S. Ólafsson og stjórnir félaga þeirra höfðu annazt undirbúning að þinginu og vistað þinghald og þingfulltrúa að Hótel Sögu. Folke- skolen, málgang danska kennarasambandsins, lýsir, hvernig til tókst, með þessum orðum: — „velkomsten og atmosfæren under hele modet var hjertelig ud over enhver beskrivelse —“. Norsk skoleblad kveður svo að orði, að íslenzku kennarasamböndin, S.Í.B. og L.S.F.K. ----------------------------------------------------—♦ „synte seg som strálande vertar i samsvar med eld- gamle islandske tradisjoner." Einnig fara blöðin lof- samlegum orðum um boðsför þingfulltrúa til forseta okkar að Bessastöðum, hádegisverðarboð borgarstjóra Reykjavíkur og kvöldverðarveizlu, sem menntamálaráð- herra, Magnús Torfi Ólafsson, bauð þingfulltrúum til í ráðherrabústaðnum. Lárartidningen, málgagn sænska kennarasambandsins, segir: — „Vid báda tillfállena var islándingar med an- knytning till skolan och samhállsförvaltningen i övrigt ocksá inbjudna och det gav tillfálle till mánge trivsamma och informella samtal." Frésagnamenn blaðanna tjá á hreinskilinn og einlæg- an hátt, hve snortnir komumenn voru af sérkennilegri fegurð landsins, enda voru veðurguðirnir þeim hlið- hollir meðan á dvöl þeirra stóð. Vegna tafa á ílugferðum urðu þeir að fresta heim- ferð eftir þinglok, föstudagskvöldið 10. sept., fram á miðjan iaugardag 11. sept. og Finnarnir fram á mánu- dag 13. sept. S.Í.B. og L.S.F.K. brugðu á það ráð að bjóða þingfulltrúum til Þingvalla, og sú ferð verður frásagnarmönnum til uppljómunar í ferðalýsingum. Lárartidningen: „Island — dit man aþsolut nágon gáng i livet bör fara.“ Finnarnir dvöldu degi lengur og telja sig hafa notið góðs af. Ólafur S. Ólafsson og Svavar Helgason óku þeim í einkaþifreiðum sínum til Geysis og Gullfoss og greina finnsku ferðalangarnir frá eftirfarandi orðræðum: „Er hætta á, að foss þessi verði fjötraður til orkuvinnslu?" spurðum við. „Nei, svo fá- tækir verðum við aldrei," svaraði Ólafur. Þinghaldið hér varð sumum blöðunum tilefni til að birta greinagóðar frásagnir um ýmsa þætti úr þjóðlífi voru. T. d. birti Lárartidningen tvær greinar, þar sem víða er gripið niður og ber önnur fyrirsögnina: „ísland — velferðarriki með vandamál vanþróunarlanda", en hin fjallar einkum um ástand og horfur í íslenzkum skólamálum. Sannast þar sem oftar, að glöggt er gests- augað, þótt ekki verði tilnefnd dæmi hér. Hin norrænu blöðin birtu einnig greinar og samtöl við framámenn í skólamálum og koma víða við. MENNTAMÁL 92

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.