Menntamál


Menntamál - 01.04.1972, Blaðsíða 35

Menntamál - 01.04.1972, Blaðsíða 35
ÞinghaldiS Þinghaldið fór fram að Hótel Sögu. Skúli Þorsteins- son, þáverandi formaður Norræna kennarasambandsins, stjórnaði þingstörfum, en Þorsteinn Sigurðsson var ritari. Skúli setti þingið með ræðu, sem flest norrænu blöðin birta nær orðrétta: „Kæru norrænu starfssystkini, fulltrúar kennarasam- takanna á Norðurlöndum. Ég býð ykkur hjartanlega velkomin til þessa stjórnar- fundar hér i Reykjavik. Samtök okkar, Nordisk Lærer- organisationers Samrád, eru ekki gömul. Ég lít svo á, að þau hafi verið stofnuð í Stokkhólmi 1968, en áður var ár hvert haldinn formanna- og ritarafundur kennara- samtaka Norðurlanda um nokkurt skeið. Síðan hafa stjórnarfundir verið haldnir í Kaupmannahöfn, Helsinki og Osló. Þessi fundur er því sá fimmti (í röðinni). ís- lenzku kennarasamtökunum þykir það skemmtileg til- viljun, að stjórnarfundur N.S.L. er í fyrsta skipti haldinn á íslandi sama ár og Samband íslenzkra barnakennara heldur hátíðlegt hálfrar aldar afmæli sitt. Skólalöggjöf og skólastarf þarf að vera i stöðugri endurskoðun. Skólastarfið má aldrei stirðna í ákveðnu formi. Tilgangur þess er að hjálpa hverjum nemanda til meiri þroska í samræmi við getu hans og framþróun þjóðfélagsins. Almenn þekking og tæknikunnátta er krafa og nauð- syn vorra tíma, en þekkingin ein og tæknivald veitir ekki hina sönnu lífshamingju. Vísindin ein veita ekki þá lífs- fyllingu, sem mannsandinn þráir. Nútíminn virðist ekki rækja sem skyldi það hlutverk að gæta þess, að maður- inn glati ekki sjálfum sér í hafróti hraðfara breytinga vorrar aldar. Hér þurfa allir að vaka á verði. Hver þjóð- félagsþegn, sem kominn er til vits og ára, er uppalandi, en kennararnir hafa valið sér það hlutskipti að veita æskunni leiðsögn í leitinni að meiri þekkingu og ham- ingjuríkara lífi. Kennaranum ber því að leitast við að '%?}. % »•> ,v l|r F°rystumcnn norrænna kennarasamtaka helmsækja lorseta islands a5 Bessastöðum. Frá vlnstrl: Hans Hellers, SviþjóS; Ólafur S. Ólafs- sonl Trond Johannessen, Noregi; Thomas Rehula, Flnnlandi; Aimo Tammivuori, Finnlandi; dr. Kristján Eldjárn, forseti íslands; Stinus ^ielsen, Danmörku; Skúli Þorsteinsson. MENNTAMÁL 93

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.