Menntamál - 01.04.1972, Page 25
hann. En er ekki líklegra, að slíkur sjúklegur ótti
eigi oftar djúpstæðari rætur annars staðar en í
bókum? OJ'beldi, illska og dauði í ævintýrum
geta að vísu hrætt barn, en þar kynnist það samt
þessum þáttum veruleikans við aðstæður, sem
gera þá bærilegri en ella; og auðvitað langar þau
til að verða dálítið hrædd! Ekki virðist því mikil
ástæða til að gera mikið úr liræðileik ævintýra-
heimsins; e£ til vill mætti öllu heldur tala um
hræðslugildi hans.
Hér hefur megináherzla verið lögð á þrennt:
I) að varhugavert sé í sambandi við barna- og
unglingabækur að spyrja: „Hvað þykir nútíma
börnum skemmtilegt að lesa?“ og jafnvel: „Hvers
konar lesefnis þarfnast nútíma börn helzt?“ (slík
spurning getur auðveldlega fætt af sér rniður góða
siðgæðiskenningu); 2) að beztu barna- og ung-
lingabækurnar liafi almennt og varanlegt gildi
fyrir unga sem aldna, vegna þess að höfundar
þeirra líta á börn fremur sem fólk en „börn“,
þ- e. þeir tala til þeirra sem jafningja; 3) að veru-
leikakenndar bókmenntir handa börnum og ung-
hngum séu að jafnaði fjær því en frásagnir og
lýsingar á ímynduðum ævintýraheimum að þroska
°g dýpka veruleikaskyn þeirra. Virðist mér, að
hér sé um svo athyglisverð atriði að ræða, að
þau verðskuldi sérstaka umræðu, án þess að öðr-
11 m þáttum, sem varða sama efni, sé þar blandað
við.
RIT UM SAMA EFNI:
C- S. Lewis: Of Otlier Worlds, Essays ir Stories, J966.
J- R. R. Tolkien: “On Fairy-Stories”, Essays Presented
lo Charles Williams, 1947.
William Walsli: The Use of Imagination, 1959.
Elizabctli Cook: The Ordinary & Tlie Fabulous, 1969.
♦
Símon Jóh. Ágústsson:
Lestrarbóka-1
könnun
♦---------—--------------------------------------♦
í liaust mun koma út á vegum Menningarsjóðs ril
með þessu hciti eftir liöfund greinarinnar. Byggist
ritið á könnun, sem höfundur gerði á útmánuðum
1965 á óviildu úrtaki um 20% 10—14 ára barna í
skólum í Reykjavík, alls 1467 nemendum. Er þar
kannað viðhorf þeirra við köflum og kvæðum í lestrar-
bókunum. Jafnframt fór fram könnun á þvf, sem
börn og unglingar lesa í tómstundum sínum, og á
mati þeirra á lestrarefninu. Sú könnun nær til óvalins
úrtaks um 20% 10—15 ára barna í Reykjavík, eða
alls til 1686 nemenda. Tölfræðilegri úrvinnslu og
annarri forvinnu við þennan hluta verksins er nú að
mestu lokið.
Höfundur væntir þess, að hagnýta megi rit lians
um lestrarbókakönnunina við heildarendurskoðun
lestrarbóka á skyldunámsstiginu, en brýn þörf er á
því, að lnin fari sem fyrst fram.
Hér á eftir eru stutt sýni úr lestrarbókakönnuninni:
Um þrjú kvæði, sem bæði 10 ára drengir og stúlkur
skipa í 1.—12. vinsældaröð (úr Skólaljóðunum), og um
tvo kafla, sem bæði 10 ára drengir og stúlkur skipa í
1 .—3. vinsældaröð í hverju leshefti, og loks fylgja
niðurlagsorð um þá kafla, sem hljóta sameiginlega
vinsældir beggja kynja.
MENNTAMÁL
83