Menntamál


Menntamál - 01.04.1972, Síða 36

Menntamál - 01.04.1972, Síða 36
Þingvallafarar á áningarstað. sá því fræi í barnssálina, sem liklegt er til þess að bera fagran og gæfuríkan ávöxt, en til þess þarf hann að njóta hagstæðra aðstæðna og skilnings allra, sem hlut eiga að máli, jafnt hins einstaka þegns og samfélagsins í heild. Þjóðir Norðurlanda eiga margt sameiginlegt. Þær hafa í meginatriðum sömu lífsskoðanir og hliðstæða menn- Ingu. Þær eru vina- og frændþjóðir. Norrænum kennur- um er því Ijúft að eiga góða samvinnu á sviði uppeldis- og skólamála. Við islendingar fögnum slíkri samvinnu. Við höfum margt lært af frændþjóðum okkar. Samtök okkar, Nordiske Lærerorganisationers Sam- rád, eru til þess stofnuð að þera saman ráð og efla skilning og samhug kennara á Norðurlöndum og hafa vekjandi og mótandi áhrif á framvindu skóla- og upp- eldismála í löndum okkar. Það er ósk mín, að kennarar á Norðurlöndum megi bera gæfu til þess að veita nemendum sínum hagnýta þekkingu í samræmi við kröfur og þörf hvers tlma, og vekja með þeim skilning og tilfinningu fyrir hinum sönnu verðmætum lífsins, sem veita þá andlegu næringu, sem æskan barfnast og þráir. Kæru vinir, sem komið um langan veg. Ég vona, að þessi fundur verði okkur til gagns og ánægju. MENNTAMÁL 94 i Hávamálum segir: .. . til góðs vinar liggja gagnvegir, þótt hann sé firr farinn. Verið hjartanlega velkomin. Þessi stjórnarfundur í Nordiske Lærerorganisationers Samrád er settur." Forseti og ritari þingsins.

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.