Vorið - 01.03.1947, Page 5

Vorið - 01.03.1947, Page 5
VORIÐ Þegar börnin gerðu verkfall ,,Nei, nú þoli ég þetta ekki leng- ur! Hvað á þessi nákvæmni og af- skiptasemi á öllum sviðum að þýða?“ mælti Adolf um leið og hann fleygði sta'kknum sínum á stól, knattrénu á gólfið og lagðist sjálfur í legubekkinn, og þrjózkan og óánægjan skinu úr sveittu og sólbrenndu andliti hans. ,,Já, hvað ætlar þú að gera, Adolf, þegar hún kemur heim og segir: „Láttu hattinn þinn á sinn stað, Ad- olf, og gerðu svo vel og hengdu stakkinn þinn á snagann. Láttu síð- an knattréð við vegginn í eldiviðar- kja]laranum,“ sagði Elísa systir hans og reyncþ að herma eftir stjúpu sinni. „Ég ætla að svara því til, að ég skuli gera það, ef ég megi hvíla mig litla stund fyrst,“ mælti Adolf. „Hennar vegna hef ég mátt þeytast um húsið þvert og endilangt, síðan hún kom hingað. Eg veit ekki, hvað oft hún hefur rekið mig fram til að þurrka af skónum sínum, eða hengja upp Iiattinn minn, eða bursta s'kóna mína og fleira þess háttar. Nú er ég orðinn þreyttur á þessu öllu saman, og nú vil ég ráða mér sjálfur." „Ég er líka þreytt á þessu öllu,“ mælti Elísa. „Þegar ég háttaði í gærkveldi, lagði ég fötin mín frá mér, eins og venjulega. Til allrar hamingju kom hún ekki inn til mín, en hefði hún gert það, er ég viss um, að hún hefði rekið mig upp úr rúminu til að raða fötunum eftir vissum reglum.“ „Mannna okkar heimtaði þetta aldrei af okkur," mælti Adolf og andvarpaði. „Nei, og þó var hér alltaf hreint og þrifalegt,“ sagði Elfsa. „Ekki kannske alveg eins hreint og fágað og hjá þessari nýju móður okkar — en ég vildi nú heldur fá að njóta meira frelsis og ntega ráða mér meira sjálf. Það er leiðinleg þessi

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.