Vorið - 01.03.1947, Blaðsíða 29

Vorið - 01.03.1947, Blaðsíða 29
V O R I Ð 25 vott, þegar barn þitt verður skírt. Þú verður því að lofa mér því að bíða eftir mér, svo að ég geti verið viðstaddur skírnarathöfnina. Eg skal vera kominn aftur í síðasta lagi eftir þrjár klukkustundir." Bóndinn lagði lítinn trúnað á þessi orð förumannsins, en lofaði þó að verða við beiðni hans. Að því búnu lagði keisarinn af stað. Þrjár klukkustundir liðu og enginn kom. Bóndinn og fjölskylda lrans voru ferðbttin, en þegar þau voru að leggja af stað til kirkjunn- ar, heyrðu þau hófaspark og vagn- skrölt á veginum fyrir utan. Bóndinn leit út og sá, að þetta var keisarinn ásamt fylgdarliði sínu. Hann kallaði því á börn sín, svo að þau gætu séð höfðingjafólkið, þegar það færi fram hjá. Allir flýttu sér út og tóku sér stöðu á dyrahellunni. En í sama bili nam hin glæsta fylk- ing staðar fyrir frarnan hinn fátæk- lega kofa bóndans, og keisarinn steig út úr vagni sínum. Hann gekk rakleitt til bóndans og ávarpaði hann á þessa leið: „Vinur minn einn, sem þú hefur fyrir skömmu gert mikinn greiða, bað mig að vera skírnarvott barns þíns, og mér er það sönn ánægja að verða við þeirri beiðni hans. Fáið mér barnið og Jrví næst skulum við balda til kirkjunn- ar.“ Bóndinn stóð eins og mynda- stytta og horfði á keisarann, bæði hraeddur og hissa. Hann sá ékki. að Jretta var sarni maðurinn, sem hafði gist hjá honum um nóttina. Keisar- inn virtist hafa gaman af fátinu, sem konr á bóndann, en síðan mælti hann í vingjarnlegum tón: ,,í gær uppfylltir þú hina fyrstu skyldu kristins manns, að hjálpa ná- unga þínum; í dag er ég hingað kominn til að uppfylla hina ljúf- ustu skyldu þjóðhöfðingjans, að launa göfugar dyggðir. Sonur þinn skal héðan í frá vera skjólstæðingur minn. Og heldurðu nú, að ég hafi ekki rétt fyrir mér, Jregar ég spáði því, að hamingjan myndi verða með syni þínum?“ Nú skildi bóndinn, hvernig í öllu lá. Með tárin í aug- unum hljóp hann inn, sótti litla soninn sinn og lagði hann í arrna keisarans. Keisarinn tók við barn- inu og Jrví næst var haldið af stað til kirkjunnar. Keisarinn efndi dyggilega loforð sitt. Hann lét ala drenginn upp á sinn kostnað, sá honum fyrir góðri menntun og reyndist bóndanum og fjölskyldu hans ætíð hinn bezti vinur. Grísinn. Tveir menn áttu grís saman. Dag nokk- urn sagSi annar maðurinn: „Ef þú vilt láta þinn helming lifa lengur, þá er ég ekkert á móti því. En á morgun verð ég að slátra mínum helmingi.“

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.