Vorið - 01.03.1947, Blaðsíða 32

Vorið - 01.03.1947, Blaðsíða 32
2á VO RIÐ ið orsök þess, að skólastjórinn ákvað að tala svolítið við Villa. Hann boðaði Villa upp á skrif- stofuna. „Heyrðu, Villi,“ sagði hann vin- gjarnlega. „Þú ert nú duglegur drengur, en mér er sagt, að þú standir alltaf í veðmálum." Villi yppti öxlum. „Já,“ sagði hann afsakandi, „Jretta er orðinn vani hjá mér, af Jrví að ég vinn allt- af. Ég get ekki stillt mig um að veðja.“ „Það er slæmur ávani,“ sagði skólastjórinn. „Sennilega enda líka þessi veðmál þín með því, að þú tapar.“ „Já, ef ég aðeins gæti tapað, mundi ég fremur geta hætt því,“ sagði Villi. „En þó að ég veðjaði við sjálfan skólastjórann, er ég viss um, að ég mundi vinna." „Ætli Jrað,“ sagði skólastjórinn. „Já,“ sagði Villi djarflega. „Ég vil til dæmis veðja krónu um það, að skólastjórinn hefur útsaumuð axlabönd.“ „Ú'tkljáð," sagði skólastjórinn brosandi, fór úr jakkanum og hneppti vestinu frá sér, svo að Villi gæti séð axlaböndin. „Sérðu, að þau eru ékki útsaum- uð. Þú hefur tapað.“ „Já,“ sagði Villi dauflega. „Þetta var dýrt spaug. Gjörið svo vel hr. skólastjóri, þér unnuð.“ Hann tók krónupeninginn upp úr vasa sínum og lagði hann á skrif- borðið. Skólastjórinn tók hann og sendi Villa burt með nokkrum á m i n n i ngaro r ðu m. Skömmu síðar gekk skólastjórinn inn í kennaraherbergið, þar sem Andersen kennari sat. „Nú held ég, að ég hafi vanið Villa al' að veðja,“ sagði skólastjór- inn drýgindalega og skýrði frá, hvað gerzt hafði. „Að minnsta kosti tap- aði hann þó að þessu sinni. Og ég vona, að hann hafi eitthvað lært af því.“ Andersen kennari varð kímileit- ur. „Það held ég varla,“ sagði hann rólega. „Nú skal ég segja skólastjór- anum nokkuð. Áður en Villi fór inn á skrifstofuna, fékk hann mig til að veðja við sig um Jrað, að hann gæti fengið skólastjórann til að fara úr jakkanum. Og við veðjuðum tveimur krónum.“ (E. S. þýddi). V O R I Ð Timarit fyrir börn og ungliriga Koma út 5 hefti á ári, minnst 32 síður livert hefti. Árgangurinn kostar kr. 6.00 og greiðist fyrir 1. maí. Utgefendur og ritstjórar: Hannes J. Magnússon, Páls Briems- götu 20, Akureyri, og Eiríkur Sigurðsson, Hrafnagilsstræti 12, Akureyri. Prentverk Odds Björnssonar.

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.