Vorið - 01.03.1947, Blaðsíða 16
12
V O R I Ð
Skógræktardagur.
Þá kem ég að lok'um að
síðasta þætti þessa máls. —
Tveir merkir skólastjórar við
barnaskóla ltafa mælt með
því, að einum degi verði var-
ið til skógræktar í barnaskól-
urn landsins á hverju vori.
Og nú, þegar von er um að
meira verði til af trjáplönt-
um en áður, þá er sérstök
ástæða til að hreyfa þessa á
ný. Það er mín skoðun, að
Alþingi eigi að setja löggjöf
um þetta efni, og lögbjóða
sérstakan skógræktardag í
skólum landsins. í lögum
þessum þarf að bjóða öllum
börnum yfir 12 ára aldur og
öllum nentendum í öðrum
skólum undantekningarlaust
að vinna við skógrækt einn
dag á vori hverju, þar sem
því verður við komið. Með
því ynnist tvennt í einu. Annars
vegar ntyndi þetta flýta fyrir skóg-
ræktinni, og hins vegar myndi það
glæða áltuga alls æskulýðs fyrir því
að klæða landið skógi. Og ekki þyk
ir mér ósennilegt, að þessir vordag-
ar yrðu sannir hátíðadagar fyrir
skólaæskuna, og góð tilbreyting að
kast'a frá sér bókaskruddunum
einn dag. Ánægjulegt væri til þess
að hugsa, að eftir næstu 30 ár
fyndust víða eins fagrir trjálundir
eins og Lystigarðurinn og Gróðrar-
stöðin á Akureyri. En margt bendú'
til, að það geti orðið.
Ungu lesendurl Hefjist handa og
gróðursetjið sem flest tré í íslenzkri
mold. Sendið „Vorinu“ línur um
þetta mál. Segið, hvað þið hafið
gert og hvað þið ætlið að gera, og
skoðanir ykkar á því. Látið myndir
fylgja frásögnunum, ef hægt er. Og
í hvert sinn og þið gróðursetjið nýtt
tré, þá reynið að sjá í draumsýn,
hvernig stóru trén vagga laufguð-
um krónum í þýðri golunni ein-
hvern tíma í framtíðinni.