Vorið - 01.03.1947, Blaðsíða 30

Vorið - 01.03.1947, Blaðsíða 30
V O RIÐ KARI TRYGGVASON: ASÍ A (Ort fyrir skólabörn i liárðardal og í samvinnu við þau. Telur höf, að börnin sjálf eigi þarna nokkrar hendingar). — Austur ií heim við höldum snör, hugur þráir spurn og svör. Vorsins eldar vekja Íjör. Við erum öll í skemmtiför. JAPAN heitir eyríki eitt, éldfjöll gjósa, stríð er þreytt. Þar er fólkið feiki sveitt, fagurgult, við bálið heitt. KÍNAVELDI miklast mér, mikið þ'ar um dýrðir er. Bláá, Gulá blika hér, börnin lijá þeim leika sér. TÍBET reisir tinda há, töfrabjarmi vefur þá. Tignarlegir til að sjá teygja þeir sig í loftin blá. Enn má líta INDLÖND hýr. Auður þar hjá Skorti býr. Þarna ganga gamalkýr, gibbonar og tígrisdýr. Skammt fyrir austan Indlands strönd eygir fögur sólskinslönd. Bera menn þar í brúnni hönd bambusreyr og kókosvönd. í SÍBERÍU er svalt og bjart, samt er þarna lítið skart: flatar auðnir, fenið margt, frosin jörð og grjótið hart. Um ÍRAN flæðir olían, annað þaðan fátt ég man. Reyndar var þó ráðstefnan rausnarleg í Teheran. Undraríki ÍRAK var, ævintýrin gerðust þar. Nú eru hrundar hallirnar, hylja sandar rústirnár. ARABÍU óð ég syng. Eyðimerkur þjóðin slyng situr glöð á silkibing, sveittir fákar allt í kring. TYRKLAN D næst má telja þá Tyrkinn hefur dökka brá. Múhameð og Allah á ákaft hrópar karlinn sá. SÝRLAND brennir sólin rjóð, sviðnar land í heitri glóð. Vegmóður og villtur tróð veiðisveinn um eyðislóð. PALESTÍNU fljótt ég finn, flýgur þangað hugur minn. Þarna flutti frelsarinn flónskum heimi boðskap sinn.

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.