Vorið - 01.03.1947, Page 22

Vorið - 01.03.1947, Page 22
V O R I Ð 18 enfylkjum liér eftir. Nýi skóla- meistarinn kemur á morgun. Þetta er síðasta kennslustund mín í móð- urmáli voru. Þið verðið að taka vel eftir." Orð skólameistarans féllu yl'ir mig eins og reiðarslag. Ó, þorparamir! Þetta höfðu þá verið fréttirnar, sem festar höfðu \ erið upp á bæjarstjórnarhúsinu. Síðasta kennslustundin í frönsku! ()g ég — ég — sem ekki kunni einu sinni að skrifa. Þá gat ég ekkert lært framar. Hér varð ég þá að hætta! Nú greip mig sár iðrun. Ég skammaðist mín nú fyrir að hafa vanrækt iexíur mínar, en leitað í þess stað að fuglahreiðrum, eða rennt mér á ánni. Bækurnar, sem voru mér áður svo leiðar og erfiðar, málfræðin og sögur helgra rnanna, voru nú orðnar gamlir vinir, sem ég gat ekki skilið við mig. Og svo var Hamel skólameistari að fara líka. Hugsunin imi, að h'ann yrði að fara burtu, að ég fengi aldrei að sjá hann framar, kom mér til að gleyma öllu um reglustikuna hans. Vesalings Hamel! Hann Iiafði klæðzt viðhafnarfötum sínum í lotningarskyni við þessa síðustu kennslustund, og nú fór ég að skilja, hvers vegna hinir gömlu borgarar bæjarins sátu jíarna á bekkjunum aftast í skólastofunni. Það hlaut að vera vegna jress, að þeir hörmuðu það einnig nú, að liafa ekki fært sér betur í nyt þá fræðslu, sem hér var að fá. Á þenn- an hátt voru þeir að tjá hinum gamla kennara sínum þakkir fyrir fjörutíu ára trúa'og dygga þjónustu og votta um leið ættbyggð sinni virðingu og þökk, þeirri ættbyggð, sem þeir áttu nú ekki lengur. Meðan ég sat og hugsaði um allt þetta, lieyrði ég nafn mitt nefnt. Það átti að hlýða mér ylir. Mikið hel’ði ég viljað gefa til þess að geta nú á skilmerkilegan hátt skýrt frá hinni óttalegu reglu um hluttaks- orðin, talað hátt og skýrt, án þess áð reka í vörðurnar. En ég fipaðist, er ég var að mæla fyrstu orðin. Þarna stóð ég og liélt mér í borðið. Hjartað barðist í brjósti mér, og ekki þorði ég að líta upp. Þá heyrði ég, að Hamel sagði við mig: „Eg ætla ekki að \ eita þér neinar ákúrur, Franz litli. Þér hlýtur að líða nógu illa samt. Nú sér þú, hvernig þetta endar. A hverjum degi höfum við sagt með sjálfum okkttr: Ég hef nægan tíma. Ég skal kera á morgun. Og nú sjáið þið, hverjar afleiðingarnar hafa orðið. O, þetta er böl okkar hér í Elsaz. Hér hafa allir frestað lærdóminum til morguns. Nú hafa þessir náung- ar þarna úti ástæðu til að segja við ykkur: Hvernig stendur á því, að þið látizt vera Frakkar, og þó kunn- ið þið hvorki að tala eða rita mál ykkar? En jrú ert ekki sá versti, vesa- lings Franz. Við megum allir skammast okkar.

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.