Vorið - 01.12.1965, Page 5

Vorið - 01.12.1965, Page 5
Kalling ekur upp dalinn og í gegnum borgina Orotava, en hún er ein af elztu og frægustu borgum eyjarinnar. Þarna eru stórhýsi mikil og ríkismanna- bústaðir. Þar búa eigendur dalsins, akr- anna og uppskerunnar. Fátækt verka- fólk býr hér í hreysum og hellum og á ekki hið minnsta af landi þessa fagra dals. Robert Kalling virðir fyrir sér þessa gömlu auðmannaborg, og hugur hans reikar víða. Honum verður hugsað til frumbyggja eyjarinnar, hinnar hraustu Guanclierþjóðar, sem flutti hingað frá meginlandi Afríku og nam þetta frjó- sama land. Þessir landnemar lifðu frum- stæðu en heilbrigðu lífi, og notuðu ein- föld áhöld úr steini. Með þeim tækjum ræktuðu þeir akra og gerðu áveitur um þurrlend svæði eyjarinnar. Auk þess höfðu þeir húsdýr, bæði geitur og sauð- fé. Kalling flýgur í hug, hvort hinir at- orkusömu landnemar hafi ekki búið við meira jafnrétti og heilbrigðara líf en núverandi kynslóð þessa dals. En saga frumbyggjanna er að mestu leyti gleymd eða liorfin í móðu aldanna og enginn veit með vissu um líf þeirra eða siði. Kalling ekur nú áleiðis upp í hlíðar Teite. Hærra og hærra liggur vegurinn gegnum stórvaxna og tilkomu- mikla furuskóga. Orotavadalurinn er baðaður í sól- skini, en þokuband liggur um miðhlíðar fjallsins. Kalling stöðvar bílinn, áður en hann leggur af stað inn í þokuna. Börnin hlaupa út úr bílnum og fram á brúnina. Þaðan er eitt hið dýrðlegasta útsýni, sem mannleg augu fá litið. „0, hve hér er fagurt!“ hrópar Norma litla. Og Anna er á sama máli. Lengi standa þær hugfangnar undir voldugu furutré og horfa yfir dalinn og strönd- ina í norðri. En hvað er orðið af Juan og Pepitu? Þau eru horfin, eins og jörðin hafi opnast skyndilega og gleypt þau með húð og hári. „Pepitu, Juan,“ hrópar Kalling og er nú orðinn óþol- inmóður að bíða. Anna og Norma koma hlaupandi, en þær hafa hvorki séð né heyrt til barnanna. „Hvert geta þau hafa farið?“ segir Kalling undrandi, og biður stúlkurnar að svipast um í brekkunni fyrir neðan veginn. Anna og Norma flýta sér af stað og kalla hástöfum. En árangurs- laust. Börnin eru horfin með sviplegum dularfullum hætti. Stúlkurnar hlaupa í allar áttir, en verða einskis vísari. Og allt í einu kemur þokan niður hlíðina og birgir allt útsýni. „Pepí, Juan!“ hrópa stúlkurnar, en enginn svarar. Loks hætta þær alveg leit- inni og klifra upp brekkuna fyrir neð- an. Og eftir ofurlitla stund koma börn- in í ljós út úr þokuhafinu. En þau eru ekki ein. Með þeim er stór hópur af einhverjum dularfullum, hálfnöktum þokulýð. Kalling starir með undrun á þetta aðkomufólk. En brátt skilur hann, hvernig í öllu liggur. Þetta eru börn hellafólksins undarlega, sem byggja hlíðar Teite, án þess að eiga annað þak yfir höfuð sér en hamra- skúta eldfjallsins. Juan og Pepitu eiga örðugt með að skilja þetta einkennilega fólk, sem þau hafa fundið þarna niður frá. Það er eins og það hafi sprottið upp úr jörð- VORIÐ 147

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.