Vorið - 01.12.1965, Blaðsíða 16

Vorið - 01.12.1965, Blaðsíða 16
hjá, þegar liann sat þar inni. Hún nam staðar við innganginn. „Þetta er ágætt hús, sem þú átt hér,“ sagði hún. „Ég sá þegar þú varzt að byggja það. Ég get næstum séð það að heiman.“ Jóhann vissi ekki hverju hann átti að svara. Þá brosti Kristín aftur eins og hún hafði gert í skólanum. Hún fálm- aoi svolítið við tölurnar á kápunni sinni, og svo sagði hún alvörugefin: „En ég segi engum frá því.“ Svo fór hún. Jóhann stóð og horfði á eftir henni, þar til hún hvarf milli heiðaásanna. Hann fann einhvern yl í hugskoti sínu. Það var eins og hann ætlaði að fara að gráta. Hún ætlaði engum að segja það. Hún skildi að kof- inn var helgidómur hans, heimili fyrir hans einmanalegu hugsanir. Honum fannst að myndazt hefði milLi þeirra eitthvert trúnaðarsamband. Og það var þægilegt. Rökkur gráa desemberdagsins leggst snemma yfir þögla heiðina, þegar Jó- hann, eftir að hafa fengið leyfi frænda síns, gengur yfir eyðilega lyngmóana. Himinninn er alskýjaður, en veðrið er kyrrt. Hann verður að flýta sér, því að hann hefur tæpan tíma. En þegar hann er kominn inn á milli lyngásanna nemur hann allt í einu staðar og hlustar. Ekkert heyrist. Nú er aðfangadagskvöld. Það fer skerandi sársauki gegnum liuga hans. Minningarnar um aðfanga- dagskvöldin með mömmu sinni steypast yfir hann og skilja eftir þrá og einmana- Ieika, svo að dregur úr honum mátt. Honum finnst, að hann rnuni engin jól eignast framar, og bezt væri, að þau væru liðin, því að hátíðir eru verstar. Hann heldur áfram með sálmabók mömmu í hendinni. Hann hefur kertis- stubb í vasanum. Við birtuna af því vill hann lesa jólasálm mömmu sinnar, þeg- ar hann kemur í kofann sinn. Frá vissum stað milli ásanna getur hann séð býlið út við mýrina, og hann sér Ijósið frá þessu einmanalega heimili. Þar á Kristín heima. Enn sér hann hana fyrir sér með ofur- lítið kyrrlátt bros, og frá því stafar ein- hver ylur, sem breiðist um huga hans, og honum finnst, að hann mundi betur njóta jólanna hér í mosaþöktum kofan- um en heima i hinum stóra bæ frænda síns. Svo gengur hann síðasta spölinn heim að kofanum. Hann beygir sig og smeygir sér inn um dyrnar, sezt á bekkinn og lítur út í rökkur kvöldsins. Þá sér hann í rökkrinu, að það er eitt- hvað á „borðinu“ hans. Hann horfir á það. Hvað er þetta. Grenigreinar og lítið jólakerti. Hvaðan? Hann er alveg þög- ull. Sundurlausar hugsanir fara í gegn- um höfuð hans: Guð — hinn góði guð — mamma. En allt í einu rennur ljós upp fyrir honum: Kristín! Það er Kristín, sem hefur prýtt kofann hans! Gleðibylgja, sem hann hefur ekki þekkt í langan tíma, fyllir huga hans. Þetta hefur svo mikil áhrif á hann, að hann verður að gráta — gráta. Svo situr hann kyrr — hann veit ekki hvað lengi. Hann verður rólegur og gleðin er áfram í huga hans. 158 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.