Vorið - 01.12.1965, Blaðsíða 34
SAMÁBYRGÐ
EFTIR ESTER ZETTERLUND
ÞátttakenduT: Fjórir drengir: Axel,
Karl Davíð og Búi.
Leiksvið: Skólastofa.
AXEL: Heyrið þið, strákar, ef kennar-
inn spyr nokkuð frekar eftir krónun-
um, sem hurfu hér, þá verðum við
auðvitað samtaka um að vita ekkert.
BUI: Já, það er svo sem auðvitað. Og
þetta verður allt auðveldara í dag, af
því að Runi er 'hér ekki.
KARL: En tókuð þið ekki eftir því, að
kennar.inn grunaði Stíg? Og það væri
slæmt hans vegna að sá orðrómur
breiddist út.
AXEL: Hvað gerir það til, þegar við
vitum, að hann hefur ekki tekið pen-
ingana?
KARL: Jú, víst. Þið getið skilið, að
honum muni ekki falla það vel að
vera grunaður um óheiðarleik. Þið
megið vera vissir um það.
DAVÍÐ: En heyrið þið nú, drengir. Eg
hef verið að hugsa þetta mál. Við
vitum það allir, að ef einhver tekur
eitthvað frá öðrum, þá er það ekki
heiðarlegt. En erum við ekki sam-
sekir, ef við höldum hlífiskildi yf.ir
þeim, sem er sekur, svo að hann kemst
undan refsingu?
AXEL: Þú átt við, að v.ið höfum
þá einnig gerzt brotlegir? Já, við er-
um það að vissu leyti, en sem félagar
verðum við að halda hópinn. Ég vildi
ekki vera í sporum þess, sem slúðrar
um félaga sinn.
KARL: Slúðrar! segir þú. Það er ekki
rétta orðið. Hér er aðeins um það að
ræða, að við svörum spurningum,
sem kennarinn leggur fyrir okkur.
DAVIÐ: Við viljum þó allir vera hug-
aðir, en kannski er það hugleysi, að
halda hópinn, þegar svona stendur á,
jafnvel þótt v.ið höfum ekki hreint
mjöl í pokanum.
BÚI: Áttu við það, að við eigum að
gera eitthvað það, sem kemur Runa
í klípu?
KARL: Hafið þið aldrei hugsað um það,
drengir, að þegar einhver sér, að hann
á ekkert á hættu þótt hann geri rangt
og allt gengur vel, er eins víst, að
hann haldi áfram með það?
AXEL: Þú átt kannski við, að það geti
orðið okkur að kenna, ef Runi heldur
áfram, en sér ekki að sér?
KARL: Já, á vissan hátt, ef við hindrum
það, að sannleikurinn komi í ljós.
BÚI: Ég verð að minnsta kosti ekki með
í því, að við svíkjum félaga okkar.
DAVÍÐ: Nei, það vill enginn okkar. En
vitið þið, hvað við eigum að gera?
Við ráðum Runa til að játa sjálfur
það, sem hann hefur gert,
17$ VORIÐ