Vorið - 01.12.1965, Side 6

Vorið - 01.12.1965, Side 6
inni allt í kring. Því er alltaf að fjölga og það kvakar og skvaldrar eitthvert mál, sem varla er hægt að skilja. Þetta hellafólk er mjög undarlegt út- lits, blakkt á hörund, breiðleitt og flat- nefja með sítt úfið hár. Sumt er með stutta bogna fætur, og börnin ganga nakin eða hálfnakin. Kalling bregður í brún, er hann sér þessa annarlegu fylkingu nálgast. Lítill kiðfættur drengur gengur í fararbroddi, réttir fram óhreinar hendurnar og bið- ur um peseta. Kalling skiptir töluverðri upphæð milli þessara örsnauðu barna. Og þó er honum ljóst, að slík ölmusa kemur að sáralitlu gagni. „Komið þið inn í bílinn,“ hrópar hann til farþeganna, þungur á svip. Hann er sem lamaður og finnur sárt til vanmáttar síns gagnvart eymd og örbirgð þessa fólks. Lengi ekur hann þegjandi upp brattar fjallshlíðarnar. Vegurinn er þröngur og þokan hvílir yfir umhverfinu. Háar og dökkleitar fjallafurur vaxa á strjálingi meðfram veg.inum. Loks hætta þær að voga sér nær toppi fjallsins, en við tekur þyrk- ingslegur runnagróður, sem sprettur hér og þar í efri hlíðum fjallsins. Allt í einu er bíllinn kominn upp úr þokunni, inn í glampandi sólskinsheim. Kollurinn á Teide ljómar í heiðríkj- unni, og hér birtist stöðugt nýtt og nýtt umhverfi. Nú er bíllinn kominn í rúm- lega 2000 metra hæð. Og hér eru víða snjóblcttir milli steina. Hraun hefur runnið úr fjallsgígnum og liggja dökk- ir taumar þess niður í dalverpi mikið á vinstri hönd. Brátt liggur vegurinn niður í fjalladalinn og beygir heim að fallegri byggingu. Það er ferðamanna- hótelið Parador de las Canadas. Skammt frá þessu hóteli eru háir og sérkenni- legir drangar, sem ferðafólk sækist eft- ir að skoða. Margir ganga líka efsta topp Teite, en hann er 3718 metra yfir sjó. Robert Kalling ekur nú heim að Parador. Þar stíga farþegarnir út úr bílnum. Börnin eru orðin matlystug, og Kalling fer með þau inn á hótelið til að gefa þeim einhverja hressingu. Hótelið stendur í sömu hæð og efsti tindur Ör- æfajökuls. Þarna er því ærið svalt uppi í Canadas. Ekki þarf þó að kvarta um kulda í hótelinu, því að furueldur logar þar á voldugum arni í gestastofunni. Börnunum er starsýnt á brakandi glóðina. Og Juan og Pepitu gleyma allri matarlöngun um stund. Þau vakna þó til meðvitundar á ný, þegar Norma og Anna kalla á þau til að borða. Og því- líkar kræsingar, sem þarna eru á borð- um, hefur börnin aldrei dreymt um. 148 VORIÐ

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.