Vorið - 01.12.1965, Blaðsíða 17
Það er eins og einhver þungi sé aÖ
losa takið á hjarta hans.
Lítið hvítt jólakerti. Angandi greni-
greinar. Á „borðinu“ hans.
Hann ætlar að kveikja á kertinu frá
Kristínu og lesa sálma við bjarmann af
því.
Svo lýsir kertaljósið upp kofann með
daufri birtu. Hann horfir á ljósið og
frá því streymir eitthvað til hans, eitt-
hvað bjart, sem flytur með sér ham-
ingju.
Drengurinn opnar sálmabókina, beyg-
ir sig niður að Ijósinu og les:
„Hin fegursta rósin er fundin
og fagnaðarsæl komin stundin.“
Jólasálmur mömmu.
En það er eins og orðin fái nýja merk-
ingu fyrir hann, eins og liann heyri sálm-
inn í fyrsta skipti. Rósin verður tákn
frelsarans.
„Er frelsarinn fæddist á jörðu,
hún fannst meðal þyrnanna hörðu.“
Já, hann hefur verið meðal þyrnanna.
En nú hefur hann fundið jólarósina.
Innra með honum hefur kviknað Ijós,
sem heldur áfram að loga.
„Þú rós mín, ert ró mínu geði,
þú, rós mín ert skart mitt og gleði —.“
Jóhann grætur. En ekki framar ein-
mana, vonlausum gráti. Efni sálmsins
gerist hið innra með honum.
Drengurinn er annar maður, þegar
hann fer út úr kofanum. Það hefur eitt-
hvað gerzt, sem hann getur ekki skýrt.
En hann veit, að eitthvað sterkt, bjart
og gott hefur komið til hans og verður
þar kyrrt. Þungri byrði er af lionum
létt.
Nú getur hann tekið þátt í jólagleð-
inni heima hjá frænda sínum. Því að nú
er dulin birta í huga hans.
Eitt andartak nemur hann þó staðar
á heimleiðinni og horfir á Jjósið, sem
skín í bænum hennar Kristínar.
Úr bókinni: Streger i sandet, 1963.
(E. Sig. þýddi).
-X- u
★ ★ T* -¥
★ ★ VERÐLAUNAGETRAUN ¥ ¥ ¥ y
★ ★ X ¥ ¥
★ ★ Hér kemur þriðji getraunaþófturinn um tímann, cyktir og merkisdaga. Bóka- •v- ¥ ¥
★ ★ verðlaun verða veitt. Sendið svörin til Vorsins, pósthólf 177, Akureyri. ¥ ¥
★ ★ ¥ ¥
★ ★ X. 1. Hvað er tunglið lcngi að snúast einn hring umhverfis jörðina? ¥ ¥ V
★ ir 2. Hvenær voru rismól? ¥ jk
★ ★ 3. Hvenær byrjar kirkjuórið? ¥ ¥
★ ★ 4. Hvenær eru vetrarsólhvörf? ¥ ¥
★ ★ 5. Hverjum af heimilisfólkinu vor Þorri og Góa tileinkuð? ¥ ¥
★ ★ ★ ¥ ¥ ¥
★
-k-K-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-K-k^-K-k-K-k-k-K-*'
VORIÐ 159