Vorið - 01.12.1965, Page 46
inu, og má þar til nefna Bindindisfélag
kennara, Bindindisfélag ökumanna,
Bindindisfélag presta o. fl., en öll eru
þessi samtök veik enn sem komið er.
Loks má nefna Félag fyrrverandi of-
drykkjumanna, sem vinnur einkum að
því að Ljarga ofdrykkjumönnunum.
Einnig er vert að geta þess, að ýmis
félagasambönd hafa unnið mjög að
bindindissemi, þótt bindindis sé ekki
krafizt af félögunum. Má þar til nefna
ungmennafélögin, skátafélögin, ýmis fé-
lagasambönd kvenna og trúarfélög. Loks
var stofnað Landssamband gegn áfengis-
bölinu haustið 1955 með hluttöku 22
félaga og félagakerfa í landinu.
Þótt þess sé sennilega langt að bíða,
að okkur komi öllum saman um að losna
við áfengið, miðar þó stöðugt í áttina
að því marki. Það er meðal annars unnið
meir og meir að því að kenna ungu fólki
að leita sér gleði og dægradvalar í öðr-
um hollari skemmtunum og nautnum en
þeim, er áfengið veitir. En þar er þó enn
mikið óunnið, svo sem að koma á ýmiss
konar tómstundastarfi í félagsheimilum.
LOKAORÐ
Hreint áfengi er litlaus vökvi, sem er
svo eitraður, að ekki er hægt að neyta
hans nema blanda hann mjög með vatni
eða öðrum vökva. Áfengið getur ekki
byggt upp eða viðhaldið neinum frum-
um líkamans. Það myndar enga orku í
vöðvunum. Sá, sem drekkur áfengi,
þykist finna hitastraum fara um líkam-
ann, en í raun og veru lækkar það lík-
amshitann. Áfengið truflar alla okkar
vöðvastarfsemi og veldur því, að menn
þreytast fyrr en ella. Það sljóvgar dóm-
greind okkar. Það læknar hvorki sjúk-
dóma, né greiðir fyrir bata. í stað þess
veldur það margvíslegum sjúkdómum.
Stórir skammtar af áfengi taka frá
mönnum ráð og rænu, en jafnvel litlir
skammtar hafa alls konar hættu í för
með sér. Áfengisnautnin kostar mikið
fé og veldur oft sárustu fátækt. Áfengið
leiðir margan mann til hinnar dýpstu
ógæfu og eymdar og hefur margvíslegt
þjóðfélagsböl í för með sér.
Það, sem hér er sagt, er ekki ágizk-
anir eða trú. Það er allt staðfest af
reynslunni og óteljandi hlutlausum
rannsóknum um víða veröld, og skrif-
aðar hafa verið margar og stórar bækur
um áfengið og áhrif þess, bæði af lækn-
um og öðrum vísindamönnum. En hér
er nefnt það helzta, sem hver maður
þarf að vita. Þú veizt nú, hvað áfengi er,
og einnig nokkuð um áhrif þess á menn,
sem drekka það. Og þá ætti þér að vera
ljóst, livers vegna þér er eirulregið ráðið
til þess að bragða aldrei áfenga drykki.
188 VORIÐ