Vorið - 01.12.1972, Síða 7

Vorið - 01.12.1972, Síða 7
Árna Thorsteinson. Hann ferðast um land- ið og kemur t.d. að Hofi til Halldórs Jóns- sonar, sem er kvæntur Yalgerði frænku hans. I Reykjavík er hann og tíður gestur á heimilum frændfólks síns, Hilmars Pin- sen landshöfðingja og Ólafs Pinsen póst- meistara. — Um Islandsdvölina farasthon- um einnig svo orð: „Eg er orðinn liálf afmenntaður (uciviliseret) og alíslenzkur, tala jafnvel dönsku með fallegasta íslenzka hreim, — og einstakur vitringur, — verri en nokkru sinni áður — óheflaður og svör- gúlslegúr.“ — Talið er, að íslandsdvölin hafi liaft mikil áhrif á Niels og aukið fé- lagslyndi hans. Stúdentsprófið gekk erfiðlega, enda var hann þá sjúkur, en prófi náði liann samt 18. júlí 1882, 21. árs að aldri. Péklc hann heldur lélegar einkunnir í flestum fögum nema náttúrufræði og stærðfræðigreinum. — Þá sagði hann við vin sinn Jón ITelga- son: „Ég ætla að verða læknir. — Pinnst þér það ekki hljóma rétt vel dr. Finsen f ‘ Nokkrum mánuðum eftir stúdentspróf heldur hann til Kaupmannaliafnar og inn- ritást í læknadeild háskólans. Sem íslenzk- ur stúdent á hann heimild til Garðsvistar. Hann fær herbergi í hornherbergi á gatna- mótum Köbmagerstræde og Kanninstræde. Á Garði býr liann í góðu yfirlæti í fjögur ár. Hann hefur ýmis áhugamál fyrir utan námið. í Pæreyjum hafði liann vanizt að sjnida í sjó og var góður sundmaður. Iíann hefur ánægju af róðrum og að sigla um sundin blá. í þessum ferðum hafa þeir fé- lagar með sér riffla og stunda fuglaveiðar frá bátnum. Niels er ágæt skytta, en þrek hans er þegar tekið að minnka. Sjúkdóm- urinn, sem þjáði hann síðar í 16—18 ár, er farinn að gera vart við sig, hann má ekki reyna á sig við róðra og siglingar og FœtHngarbær Niels F. Finsen. verður að láta sér nægja skotíþróttina. ITann ver öllum frístundum sínum á skot- brautinni, tekur þátt í fjölda skotkeppna og lxlýtur mörg fyrstu verðlaun í Dan- mörku og verður Norðurlandameistari í skotfimi. En brátt verða jafnvel skotæf- ingarnar honum oframi, og þá hverfur hann aftur að æskuiðju sinni, teiknar og tálgar í tré, því að aðgerðarlaus gat hann aldrei verið, jafnvel í frístundum sínum. í skólaleyfum er Niels oft hjá föður sín- um, amtmanninum í Ribe. Það var eðli- legt, að synir amtmannsins og dætur Bals- lev biskups (sem samdi gamla kverið) hitt- ust oft. Og þar skeði það, að eftir að Niels hafði tekið fyrrihlutapróf 1889, hitti hann ungfrú Ingeborg Balslev og trúlof- uðust þau fljótlega, og síðar varð hún eiginkona lians og tryggur förunautur á erfiðri lífsbraut. Háskólaprófi í lælmisfræði lýkur hann í árslok 1890, en fær aðeins aðra einkunn. Þetta voru honum vonbrigði, því að liann hafði búið sig undir prófið eins vel og lieilsan leyfði. Það varð honum þó mikil sárabót og uppörfun, að prófessor J. 11. Chievitz viðurkennir hæfileika hans og ræður hann, þrátt fyrir slakt próf, sem að- stoðarraann sinn. Þettí var talinn veruleg- VORIÐ 7

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.