Vorið - 01.12.1972, Síða 8

Vorið - 01.12.1972, Síða 8
ur vegsauki fyrir hinu 30 ára gamla læknakandídat. En á8ur en lengra er haldið skulum við aðeins víkja ögn nánar að háskólaárunum og heimilinu í Ribe og láta Árna Thor- steinson tónskáld segja fáein orð um Niels eins og hann kemst að orði í Tlörpu minn- inganna: „Þeir, sem ég umgekkst mest fyrst eft.ir komuna til Kaupmannahafnar, auk Hann- esar hróður míns, voru hræðurnir Vilhelm Pinsen, póstfulltrúi við aðalpósthúsið í Kaupmannahöfn og síðar póstmeistari í Charlottenlund, og Niels R. Finsen læknir. Niels þekkti ég áður, en hann var skóla- bróðir Iíannesar og stúdent héðan að heiman. Kom hann oft til foreldra minna á skólaárum sínum hér, en annars bjó hann hjá Marie ömmu sinni í Suðurgötu 4. — Nokkrum dögum eftir að ég kom til Kaup- mannahafnar, eða 5. október um liaustið, áttu Hannes Finsen, stiftamtmaður í Ribe, og síðari kona hans, Brigitte Kristine Fromann, silfurbrúðkaup. Fengum við Hannes þá boðsbréf, þar sem þess var ósk- að, að við mættum í veizlu, er halda átti í tilefni af hjúskaparafmælinu. Hannes átti þá annríkt í próflestri og gat ekki komið því við að fara, svo að það varð úr, að ég færi einsamall. ITafði ég þá aldrei stigið upp í járnbrautarlest, en átti 10—11 st.unda ferðalag fyrir höndum, bæði í lest og á skipi yfir Litla- og Stórabelti. Þegar til Ribe kom, var þar margmenni í amt- mannsbústaðnum, frændur og venzlafólk hjónanna víðs vegar að. Var staðarlegt að líta þangað heim, því að kringum húsið var stór og fagur aldingarður, og máttu gestirnir tína ávexti af trjánum eftir vild og gátu valið um epli, perur, stöngulber og fleira. Fyrstu nóttina svaf ég í amtmannsbú- staðnum, en daginn eftir bættust við gest- ir, og varð þá að koma sumum fyrir til gistingar í öðrum húsum. Mér var komið fyrir hjá Balslev biskupi og konu hans, en Niels var þá heitbundinn Ingeborg dóttur þeirra. Biskupsiijónin voru öldruð og virðuleg, og man ég, að ég leit biskupinn með ekki lítilli lotnhigu. — Eitt árið, sem ég dvaldist í Danmörku, var mér aftur boðið til Ribe, og var þar í sumarleyfi mínu. Þá var Niels R. Finsen einnig lieima og bræður hans, Steingrímur og Jón.“ Niels R. Finsen kvæntist Ingeborg Dorotheu og voru þau vígð í frúarkirkj- unni í Kaupmannahöfn 29. des. 1892 og var Árni Thorsteinson þar m.a. viðstadd- ur ásamt miklu fjölmenni. KROSSGÖ TUR Sumir segja, að krossgötur sé þar t. d. á fjöllum eða hæðum, sem sér til fjögurra kirkna. Elzta trúin er sú, að menn sku’ i liggja úti á jólanótt, því þá er áraskipti, og enn í dag telja menn aldur sinn eftir jólanóttum og sá er t. d. kallaður fimmtán vetra, sem hefur lifað fimmtán jólanætur. Síðar færðu menn árs byrjunina á nýjárs- nótt. Þegar menn sit.ja á krossgötum, þá koma álfar úr öllum áttum og þyrpast að manni og biðja hann að koma með sér, en maður má engu gegna. Þá bera þeir manni alls- konar gersemar: gull og silfur, klæði, mat og drykk, en maður má ekkert þiggja. Þar lcoma álfakonur í líki móður og systur manns og biðja mann að koma, og allra bragða er leitað. framh. á hls. 34 8 VORI Ð

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.