Vorið - 01.12.1972, Page 9

Vorið - 01.12.1972, Page 9
Þeirra finnst fyrst getið á bók í Grýlu- kvæði Stefáns Ólafssonar í Yallanesi frá 17. öld. Telur hann Grýlu og Leppalúða foreldra þeirra: Börnin eiga þau bæSi saman brjósthörð og þrá, af þeim eru jólasveinar, börn þekkja þá. Næst getur Jón Grunnvíkingur þeirra í orðabók sinni frá því um 1740. Þá er þeirra getið í ITúsagatilskipuninni, útgef- inni á ITólum 1746, og fer úr því að fjölga vitnisburðum um tilveru þeirra, þótt ekki sé getið um ætterni. Jón Árnason segir það sumra manna mál, að Grýla hafi átt þá, áður en hún giftist Leppalúða, og hefur Jónas Jónsson heyrt, að faðir þeirra héti Loðinbarði. Bn hann hefur einnig heyrt marga halda því fram, að jólasveinarnir ættu ekkert skylt við Grýlu eða hennar hyski. Þegar fyrst er getið um Jólasveina, er ekkert. tekið til um fjölda þeirra, og óvíst er, hvenær tekið liefur verið að reyna að henda reiður á tölunni. Það er ekki fyrr en 200 árum síðar, hjá Jóni Árnasyni, sem reynt er að ákveða tölu þeirra, og ltann- ast hann þá við tvær skoðanir, að þeir séu þrettán eða níu. Fyrri skoðunin er al- mennari, a. m. k. nú á dögum, enda kemur hún heim við fjölda jóladaganna, og nöfn hefur Jón Árnason fengið á þeim þrettán hjá séra Páli Jónssyni á Myrká, sem trú- lega hefur lært þau í æsku sinni vestur í Dölum. Hin skoðunhi virðist liafa verið almenn í Skagafirði og víðar norðanlands, og hún hefur það sér til styrktar að geta að dæmi Snorra Sturlusonar stuðzt við „forn kvæði eða söguljóð“, nefnilega þul- rma Jólasveinar einn og átta ofan lioma af fjöllunum o. s. frv. og hina, er svo hljóðar: Upp á stól stendur mín kanna, níu nóttum fyrir jól þá kem ég til manna. Blztu nöfn jólasveinanna, sem þekkt eru, eru þessi: Stekkjastaur, Giljagaur, Stúfur, Þvörusleikir, Pottasleikir, Aska- sleikir, Faldafeykir, Skyrgámur, Bjiigna- krældr, Gluggagægir, Gáttaþefur, Ket- krókur, Kertasníkir. En fleiri nöfn eru til á jólasveinum, livort sem það merkir, að þeir gangi undir mismunandi nöfnum eft- ir sveitum, eða séu fleiri en þrettán. Þessi nöfn eru Kertasníkir, Pönnusleikir, Potta- skefill, ITurðaskellir, Moðbingur (líklega úr Eyjafirði), Illöðustrangi, Móamangi. Vorið 9

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.