Vorið - 01.12.1972, Qupperneq 15

Vorið - 01.12.1972, Qupperneq 15
Árin næstu Lísa litla lærði' allt þarft og gott. Leti, ólund, raup og reiði rak hún frá sér brott. Var hún orðin iðin stúlka, elskuleg og blíð. Miðlaði' eftir megni sínu mömmu' af sinni tíð. Mamma átti ósköp erfitt, — ein með stóran hóp. En hún treysti' í þraut og þrenging þeim, er hana skóp. Bað og vann með glöðu geði, Guði börnin fól. Döfnuðu' þau með degi hverjum. Drottinn var þeim skjól. VORIÐ Skólann rækti litla Lísa, — las og vann í senn. „Mikið má, ef vel er viljað," vita allir menn. Bók reis oft við borðskúffuna. Barn í vöggu lá. Lísa prjónar, lærir, vaggar. Líti börnin á! Hún er skólans höfuðprýði: Hæversk, stillt og fróð, — sögur þylur, saumar, teiknar, syngur fögur Ijóð. Stundar æ af stöku kappi störf með trú og dyggð. Mamma þakkar hlýjum huga hennar miklu tryggð. Vald. V. Snævarr. 15

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.