Vorið - 01.12.1972, Side 22
SPARIGRÍS.
Efni: Uppblásin blaðra, niðurrifinn dag-
blaðapappír og lím. Bezt er að nota
veggfóðurslím eða hveitilím, p. e.
grautarlím, sem þið getið soðið
sjálf. Hólf úr pappaeggjabökkum,
þekjulitir og lakk eða venjuleg
málning.
Þetta er skemmtileg dægradvöl og til-
valin jóla- eða afmælisgjöf. Það þarf gott
pláss á meðan þið eruð að þessu og þið
gætuð jafnvel verið á gólfinu, með því að
breiða pappír undir, því límið vill klístr-
ast.
Þið byrjið á því að rífa dagblað í smá
búta, ekki stærri en ca. 10x10 cm. Bleytið
svo bútana í lími og leggið jafnóðum á
uppblásna blöðruna. Pappírinn blotnar
fljótt í gegn og því er ekki hægt að fara
nema 2—3 umferðir yfir blöðruna í einu.
Síðan leggið þið blöðruna við hita, t.d. á
ofn og látið þorna. Leggið svo aftur nokkr-
ar umferðir af límbleyttu bútunum yfir
og látið þorna á milli. Þið finnið, þegar
blaðran er orðin nokkuð stíf, til þess þarf
á að gizka 6—8 umferðir. Pappírinn verð-
ur að liggja alveg sléttur á blöðrunni eftir
síðustu umferð.
Á meðan blaðran er að þorna eftir síð-
ustu umferð, klippið þið formin út úr
eggjabökkunum og límið þá síðan undir
blöðruna fyrir fætur og framan á fyrir
trýni á grísnum. Eyrun má einnig klippa
úr hálfu formi, en rófuna er hægt að mála
á eða nota pípuhreinsara. Næsta dag getið
þið svo málað grísinn. Fyrst yfir allan
búkinn og látið þorna og síðan andlitið,
og að lokum skreytt grísinn á hliðunum
með fallegu munstri eða blómum. Ef þið
notið þekjuliti eða vatnsliti, verður að
lakka yfir allan grísinn, því annars fer lit-
urinn af.
Að síðustu er svo skorið gat efst á grís-
inn fyrir peningana og þá er hann orðinn
fínasti sparigrís og hann tekur lengi við,
því hann verður talsvert stór, ef þið blás-
ið blöðruna vel upp.
22
VORIÐ