Vorið - 01.12.1972, Qupperneq 23
MeS þessari sömu aðferð má gera mjög
skemmtilega ljósakrónu. Þá er notaður
klósettpappír í stað dagblaða, því ljósið
verður að skína svolítið í gegn. Blaðran er
þá aðeins þakin að hálfu leyti, eða svo
langt sem maður kýs. Þar sem pappírinn
er þynnri en dagblaðapappír, er ráðlegt
að hafa umferðirnar fleiri. Þegar allt er
orðið þurrt, er blaðran sprengd innan úr
og skermirinn klipptur til að neðanverðu
og gert gat að ofan fyrir perustykldð.
Síðan málað að innan og utan og jafnvel
skreytt með útklipptum silkipappír, sem
límdur er á, eða aðeins málað í einum lit.
Þó er ráðlegt að hafa ljósan lit að innan-
verðu, svo ljósið lýsi betur.
Tíminn nýtist betur, ef unnið er við
tvær eða fleiri blöðrur í einu, vegna þess,
hve límið er lengi að þorna á milli um-
ferða.
Regina Hauksdóttir (dr. og st. 13-16)
Hlíðarbraut 3, Hafnarfirði.
SKRlTLUR
Kennarinn: Geturðu sagt mér Halli,
livaða tíS þetta er: Ég borða . . . ?
Ealli: ÞaS er máltíð.
Kennarinn: „Á liverju þekkir þú kú?“
„Óli litli: „Á því, aS liún hefur brjóstin á
maganum/1
☆
n-Rg kvœntist henni Guðrúnu einungis vegna
þess, að ég hafSi ekki efni á að vera trúlofaSur
henni lengur.“
☆
„Viltu ekki lána mér 10 þúsund krónur?“
„Ekki fyrr en ég kem aftur frá London?“
„Ætlarðu þangaS?“
„Nei.“
VORIÐ
23