Bjarmi - 01.11.1928, Qupperneq 24
248
BJARMI
Strandarkirkja.
Hr. ritstj., cand. S. Á. Gíslason I
Hjer með sendi jeg yður ávísun upp
á eitt hundrað krónur, sem er áheit
eða gjöf frá mjer til Strandarkirkju, og
bið jeg yður um að gjöra svo vel að
leggja þær í Aðaldeild Söfnunarsjóðs
íslands, svo að þær ávaxtist þar, — með
öðrum áheitum á Strandarkirkju, sem
kunna að bætast við, — uns sjóður
þessi, sem nefna mætti »Prestalauna-
sjóð Strandarkirkju«, er orðinn svo
mikill, að ársvextir hans hálfir eru
jafnir meðal prestslaunum í hinni
evangelisk-lútersku kirkju á íslandi.
Er þá biskup íslands (eða Skálholts-
biskup) beðinn um, — eða guðfræði-
kennarar Háskóians eða aðrir góðir
kennimenn, ef þörf gerist, — að fara
þess á leit við löggjafarvald ísjands,
að stofnað sje sjerstakt prestsembætti
við Strandarkirkju, og skal þá hálf-
um ársvöxtum sjóðsins varið til að
launa prest hennar. Skulu laun hans
vaxa eftir því sem hálfir áisvextirnir
aukast, uns þau eru orðin jafnhá hin-
um hæstu föstu prófessorslaunum í
guðfræðisdeild Háskólans. Hinn helm-
ing ársvaxtanna, ásamt væntanlegum
áheitum eða gjöfum til Strandar-
kiikju, skal jafnan leggja við höfuð-
stól sjóðsins.
Biskup lslands, varabiskupar þess
(eða biskuparnir í Skálholts og Hóla
biskupsdæmum, ef þau verða endur-
reist), kennararnir í guðfræðisdeild
Háskólans og þrír fulltrúar úr söfn-
uði Strandarkirkju velji hinn ágætasta
prest til Strandarkirkju, sem kostur er
á í hvert sinn, prest, sem hefir bæði
vilja og hæfileika til að efla kristin-
dóminn á íslandi, og gefur biskup út
veitingarbrjef hans.
Nú vex þessi »Prestalaunasjóður
Strandaikirkju« svo mikið, að eigi
þarf allan helming ársvaxtanna til
að launa prest hennar; skal þá nota
afganginn til að launa sjerstaka,
ágæta og áhugasama presta á hinum
fornu biskupssetrum Skálholti og
Hólum, og á Pingvöllum, eða til að
bæla laun þeirra, ef staðir þessir
hafa eignast presta, sem eru eigi
launaðir svo vel sem prestur
Strandarkirkju, og síðar til að fá
öðrum merkum kirkjum góða, sjer-
staka presta. — Biskuparnir og guð-
fræðikennararnir, ásamt þremur full-
trúum úr hlutaðeigandi söfnuði veiti
prestsembætti þessi.
Eftirlaun skal sjóðurinn greiða
prestinum að Strandarkirkju og þeim
prestum, er hann launar að öllu.
Nú vill löggjafarvaldið eigi stofna
sjerstakt prestsembætti við Strandar-
kirkju. Ef söfnuður hennar verður
þá framvegis evangelisk-lúterskur og
vill gerast fríkirkjusöfnuður við
Strandarkirkju, til þess að hún geti
eignast sinn eigin prest, þá skal hann
eiga rjett til þess að fá laun og eftir-
laun úr sjóði þessum handa presti
kirkjunnar. Eins má fara að, ef lög-
gjafarvaldið vill eigi stofnsetja sjer-
stök prestsembætti, ríkissjóði að
koslnaðarlausu, á biskupssetrunum
gömlu eða öðrum gömlum kirkju-
stöðum.
Sjóður þessi skal vera undir yfir-
stjórn hins evangelisk-lúterska bisk-
ups á íslandi (eða i Skálholtsstifti)
og tveggja kennara úr guðfræðideild
Háskólans, sem skulu kosnir til þess
af deildinni sjálfri. Pá ársvexti, sem
falla til útborgunar, skal Söfnunar-
sjóðurinn greiða biskupi, og varð-
veitir hann þá í tryggilegum spari-
sjóði, ef hann greiðir þá eigi þegar
til prestslauna. — Ef Strandarkirkja
kynni að eyðileggjast, og landbrot
eða annað gerði það ómögulegt að
endurreisa hana, þá skal sjóðurinn