Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.12.1931, Qupperneq 34

Bjarmi - 01.12.1931, Qupperneq 34
210 BJARMI inn allherjar komi og sópi brott þessu fólki, sem kvelur og kvelst svo ógurlega? En hver getur svarað? Hver þekkir vegu hans og ráð, sem stýrir alheimi? Blóð píslarvotta hrópar. Kveinstafir smælingja stíga í hæðir. Hvað stoða hátíðir? Hvar er jólafriður? Hátíðir með veraldarblæ stoða lítið, en boðskapur jólanna er samt eina meinabótin, eina ljósið í myrkrinu, þar sem hjörtun eru opin. Væru engin jól — væri lífið á jörðu helmyrkur. »Lof sje Guði og föður Drottins vors Jesú Krists, sem eftir mikilli miskunn sinni hefir endurfætt oss til lifandi von- ar,« syngja kristnir píslarvottar vorra tíma alveg eins og fyrrum. »Frelsarinn er fæddur á jörð og hann er hjá oss nú og flytur oss heim til sín, brott frá synd og hörmungum. Þótt sárin svíði og tárin hrynji, veitir hann oss óskiljanlegt þrek og dýrlegan unað í samfjelagi sínu og bjargfasta von ,um eilífðarsælu.« Þannig hafa raunabörnin vitnað í nærri 20 aldir, raunabörn, sem elskuðu jólabarn- ið, höfðu reynt það að blóð Krists frels- ar frá synd og kvíða. En óttalegt er um að hugsa, hvað marg- ir vita ekkert enn um kom,u frelsarans, eða sem er enn hræðilegra, vanrækja vilj- andi að leita til hans í alvöru, en leita heldur styrks í draumórum eða gleymsku 1 helmyrkri. — »Vaklð lærisveinar! Starfið biðjandi, biðjið starfandi, til að bjarga þeim sem þjer náið til«. Það er boðskapur hæða á annari eins jólahátíð. Nú er enginn tími til að »eiga frí«, — en innan lítillar stund- ar tekur við e'ilífur jólafagnaður heima hjá Drottni fyrir alla sanna lærisveina frelsarans, og þá eru allar raunaspurning- ar og hörmungar horfnar í úthaf gleymsku. Heilir til hjálpar! Hugrakkir í hörmum! Öidátir í örbyrgð! ösirandi í baráttu ljóss- gegn myrkri. Það er jólahvöt vor. Ofurlítið kraftaverk. Kristniboðinn E. Stanley Jones skýrir frá því í bók sinni »The Christ of the Indian Road« (Kristur á vegum Indverja), að fræðimenn indverskir hafi oft og tíð- um lagt fyrir sig spurningar um trúmál, sem miklu skifti, að rjett væri svaraó. Hann getur þess t. d., að ein,u sinni hafi 30 lögfræðingar yfirheyrt hann og lagt fyrir hann flækju-spurningar, í von um að geta afsannað biblíulegar röksemdir hans, »En biblíu-orðið reyndist satt«, segir hann. Hann skýrir frá því, meðal annars, að einu sinni hafi Indverji spu.rt sig á þessa leið: »Getið þjer bent mjer á biblíuvers, þar sem Jesús sjálfur kallaði sig Guðs son? Ekki þar sem lærisveinar hans eða einhverjir aðrir kalla hann það, heldur ha nn sjálfur«. Mjer fanst sem jeg væri að hníga nið- ur í gólfið. Jeg mundi það ekki (í svipinn), hvar slík ummæli var að finna, og nú heimtaði spyrjandinn, að jeg skyldi benda á þau. Jeg tók nýjatestamentið mitt, með bæn til Guðs um að finna þetta vers. Þegar jeg svo opnaði bókina, varð mjer fyrst litið á alt annað vers en það, sem jeg ætlaði að finna; fyrir mjer varð versið, þar sem Jesús fann blinda manninn, sem hann hafði læknað og spurði hann: »Trúir þú á Guðs-soninn? Hann svaraði og sagði: Og hver er sá, herra, að jeg geti trúað á hann? Jesús sagði við hann: Þú hefir þeg- ar sjeð hann og það er hann, sem við þig talar« (Jóh. 9, 35.—37.). Jeg las upp þessi vers, eins og jeg hefði einmitt verið að leita að þeim! Þeir (spyrj- endur) fengu aldrei að vita um litla kyr- láta kraftaverkið, sem Guð hafði gjört, til að láta rætast fyrirheitið um það, að þaö sem vjer eig,um að segja, skuli verða gefið oss á þeirri stundu (Matt. 10, 19.). En jeg

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.