Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1931, Síða 39

Bjarmi - 01.12.1931, Síða 39
BJARMI 215 að láta mig hjai-a heimi i, feginn vil jeg, faðirinn góði, fara til þín úr þvi. Á miðaftni mun þverra máttur allur og þrótt; græði minn góði herra af gæsku dag sem nótt gjörvöll min mein og synda sár. Eilífur Jesús unn mjer þess mín iðran verði klár. Enn vil jeg hugann herða, af hryggri kalla raust, við mun Jesús verða, það veit jeg efalaust, á náttmálum að náða mig, mildi Jesús, meyjar son, minstu hvers jeg bið. A sjálfu sólarlagi sendi mjer Jesús náð. Pað trúi jeg hörmum bægi, og heftist sorgin bráð, er nú dagur á enda hjer, feginn vii jeg, faðirinn góði, fá að vera hjá þjer. Fyrir ættmenn mina alla eilífan Guð jeg bið, bæði konur sem kalla, keypt hefir hann þ'eixn frið, blessaður Guð með blóði sín; högg og pústur herrann leið fyrir hryggileg afbrot mín. Bundinn og barinn með vöndum, blessaður Guðs son var, fjötraður fótum og höndum, fárlega pínu hann bar, harðlega negldu þeir hann á kross. Drottinn þoldi dýrstur neyð, dundi benja foss. Fljótt á krossinn færðu frelsarann, Jesúm Krist, gaddar Guðs son særðu gegnum lófa og rist, höfuð hans þoldi harða pín, fyrir benjar hans og blóðug sár bið jeg þú lít til min. Gáfu gall að drekka, Guð, blesaður þjer, leiðstu lángan ekka, lausnari heimsins hjer; mæltir þá í síðasta sinn: »1 þínar hendur, faðirinn góði, fel jeg anda minn«. Einn af ilsku lýðum ill með grimdar hót, lagði i lausnarans síðu Lunganus með spjót, blóð og vatn úr benjum rann, þinn hjartadreyri, herra minn, heiminn yfirvann. Blessað blóðið rauða úr benjum Jesú rann, sig Drottinn gaf í dauða, djöfulinn yfirvann, kláru verði keypti hann mig, Hjer fyrir vil jeg, Herrann góði, heiðra og lofa þig. Oss leið á lífsins brautir lofsæll meyjar son, eru þá endaðar þrautir, á eilifu lífi von, virstu, minn Guð, að veita það ásamt kristnum öllum hjer öðlist þann sælustað. Blessaðan Guð jeg beiði fyrir blóðið lausnarans, lífsins veg mig leiði og ljómandi dýrðar krans öðlast jeg þegar æfin þver, minn góði Jesús, Guð og mann, gef jeg mig allan þjer. Amen. Gúð nýung. Luthersstiftelsen i Osló og Lohse í Kaupmannahöfn hafa nýverið »gefið út« all- margar »grammofónplötur« með stuttum rreðum og sálmasöng eftir ýmsa bestu menn þjóðar sinn- ar hvor um sig. Geta þeir, sem dönsku eða norsku skilja og »hljómvjel« eiga, hlustað þar á t. d. Skovgaard-Petersen, Fibiger, Ussing, Hallesby, Lunde biskup, Ludvig Hope o. m. fl. Hver »plata« kostar um 5 kr. íslenskar hingað komin. Bjarmi gæti hjálpað einhverjum um nokkrar norskar »plötur«, en er ókunnugt um hvort leyft er nú að flytja þær til íslands.

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.