Bjarmi - 01.12.1931, Síða 40
216
BJARMI
Guðfinna S. Jónsdóttir.
Garði — Ólafsíirði
F. 1852 — d. 1930.
Pín sál er hjeðan svifin
og sára þrautin liðin,
er bjó þjer banastund.
að helgum himinsölum,
horfin frá jarðlífs kvölum
þú sofnaðir þinn síðsta blund.
Vjer sjáum sætið auða
og söknum þín 1 dauða,
en fögnum frelsi þó,
sem önd þin hlotið hefur
voi' herrann sigur gefur,
sem fús á krossi fyrir oss dó.
En þótt vjer sáran syrgjum,
og sífelt augu byrgjum,
ef mæta mæðusár.
Guðs heilög höndin blíða,
burt hrindir öllum kvíða,
og þerrar burt sjerhvert sorgartár.
Pín minning mörgum lifir,
þótt myrkur skuggi yfir
hjer hvíli köldum ná.
Vjef söknum sárt og grátum,
en samt þó huggast látum
uns fáum þig um síðir sjá.
Lausnarans ljósið bjarta
lifir nú þjer við hjerta,
hvar elskan ætlð skin,
íagnar þjer friðarandi
fögru á sólarlandi,
æfin manns þar sem aldrei dvín.
Sra Ujarni Þorstcinsson, prófessor, varð sjötug-
ur 14. október s.l. Hann er fyrir iöngu orðinn
þjóðkunnur fyrir söngrit sín. Fyrsta bók hans
(XX sönglög) komu út árið 1892, en síðar komu
út margar aðrar, svo sem »hátiðasöngvar«, »is-
(ensk þjóðlög«, Kirkjusöngsbók o. m. i'l. Sra Bj.
Þorstei.nsson vigðist að Hvanneyri I Siglufirði
haustið 1888 og hefir þjönað þar síðan.
SuMaiaskólatiiiiiU i BMapst.
Eftir Valgeir Skagfjörð, stud. theol.
Sýnir þetta, að það hefir verið gert of
mikið úr móttökuhæfileikuim barnanna.
Okkur virðist það ligg'ja í augum uppi, en
á þeim tímum lá það ekki eins og opið fyr-
ir. En þrátt fyrir þessa veiku hlið, þá vek-
ur það undrun manns, hvað fyrirkomulag-
ið hefir í rauninni verið gott, þegar á alt
er litið. Sem dæmi þess má nefna, að
Raikes skipaði börnunum í flokka eftir
aldri, 20 í hvern flokk, og þessum flokkum
skifti hann svo aftur í 4 minni flokka, og
var eitt barn valið úr hverjum þessara 5-
barnaflokk, og átti það að vera einskon-
ar foringi, gæta þess, að enginn órói ætti
sjer stað og auk þess að hjálpa að nokkru
leyti til við kensluna. Þessi aðferð og nið-
urröðun er enn víða notuð í nýtísku sunnu-
dagaskólum, og það er talið miður farið, af
flestum, sem vit hafa á þessum málurn, ef
svo er ekki.
Með hjálp annars manns, Fox að nafni,
stofnaði Raikes fjelag til eflingar sunnu-
dagaskólastarfseminni í öllu hinu breska
ríki, 7 sept. 1785. Og upp frá því breiddist
hreyfingin svo ört út, að á fjórum árum
jókst tala sunnudagaskólabarnanna úr 200
upp í 50,000. Nú var alveg hætt að borga
kennurunum þóknun fyrir starf sitt, því
að nú ijjekst nóg af kristnum sjáifboðalið-
um. bæði ungum og gömlum, körlum og kon-
um. Síðan Alþj.samb. var stofnað, á síðari
hluta 19. aldar, hefir starfseminni fleygt
fram, bæði hið ytra og hið innra. Hið ytra
hefir hún vaxið svo, að nú eru alls í heim-
inum um 320 þús. sunnudagaskólar með
rúmlega 34 miljónum barna. Hið innra
hefir starfsemin styrkst með aukinni
þekkingu á sálarlífi barnsins, sem hefir
orðið til þess að menn hafa tekið upp nýj-
ar og betri starfsaðferðir. En það er fyrir
utan svið þessarar greinar að lýsa þeim