Bjarmi - 01.06.1995, Page 20
Skráöir kórfélagar
eru 70 talsins, á fý fleiri stráka þá er kórinn samt ekki hjónabands-
aldrinum 13-30 ara.
miðlun!
70 skrábir í kórinn
HvaÖ eruÖ þiö mörg?
„Það eru 70 skráðir í kórinn núna. Það má segja
að það sé 50 manna kjarni. Það bættust mjög marg-
ir nýir við síðasta haust þegar kórinn kom saman
eftir sumarfrí. Það hafa komið krakkar í kórinn,
sem voru ekki í neinu samfélagi áður, en höfðu bara
áhuga á gospeltónlist."
„Mér var eiginlega alveg hætt að lítast á blikuna á
fyrstu æfingunni í vetur þegar salurinn sem við
æfum í var orðinn fullur af krökkum," segir Ester.
„Ég þekkti ekki nærri því alla þessa krakka og ég
vissi ekki hvernig ég ætti að fara að því að halda
Eg þekkti ekki nærri því alla þessa krakka og
ég vissi ekki hvernig ég œtti aðfara að því að
haláa utan um þetta.
utan um þetta. Ég hafði talsverðar áhyggjur af
þessu, en svo fannst mér Guð tala til mín og segja
mér að hætta að hafa áhyggjur, hann væri að senda
þessa nýju krakka í kórinn og hann myndi sjá fyrir
þessu öllu. Ég hef ekki neitað neinum um að vera
með í kórnum. Ég tek samt alla í raddprufu, en það
er aðallega í þeim tilgangi að kynnast aðeins hverjum
og einum og svo auðvitað til að vita hvaða raddir
krakkarnir eiga að syngja.
Þetta hefur gengið alveg ótrúlega vel þrátt fyrir
allan þennan fjölda. Guð hefur svo sannarlega leitt
þetta áfram. Ég hefði aldrei getað staðið í þessu
upp á eigin spýtur. Ég er ekkert menntuð í tónlist
eða neitt svoleiðis," segir Ester.
Hvernig finnst ykkur ganga aÖ blancla svona
samanfólki úr ólíkum samfélögum?
„Ofsalega vel! Við erum öll eitt, öll í fjölskyldu
Guðs. Við finnum ekki fyrir neinum ríg og erum öll
mjög góðir vinir.“
Framtíbin
Ester stefnir að því að flytja til Akureyrar bráðlega
og kemur ekki til með að stjórna kórnum næsta
vetur. Hann mun samt halda áfram undir stjórn
annarra aðila, en það er ekki alveg fullfrágengið
20