Bjarmi - 01.10.1995, Blaðsíða 19
VIÐTAL
kristnir. Það skiptir miklu máli hvaða boðskapur er
fluttur, hvort það er boðskapur sem frelsar eða setur
hömlur á fólk. Við viljum ekki draga hring utan um
kristindóminn heldur vera eins og spjótsoddur sem
nær til fólks. Við þurfum oft að hreinsa til hjá fólki
og laga þá mynd sem það hefur af því hvað kristin-
dómur er. Oft talar kristið fólk við aðra með nei-
kvæðum hætti í stað þess að tala jákvætt, það talar
um fólk í stað þess að tala við það. Það eru forrétt-
indi að ná til svo margra sem ekki eru með í kristi-
legu lífi og samfélagi en því fylgir líka mikil ábyrgð,
segir Ole Edvard.
Spyrjandi fólk
Kórinn fær mikið af bréfum og símhringingum sem
snúast ekki bara um tónlistina. Fólk hringir og
skrifar og er með spurningar um trúna og hvort það
geti kallað sig kristið. Aðrir segja frá því hvernig
textinn og tónlistin hafði áhrif á þá á erfiðum tímum.
- Þetta eru dýrmætustu viðbrögðin sem við fáum
þegar við sjáunt að það sem við erum að gera hefur
gildi fyrir fólk, segir Ole Edvard.
e.t.v. dálítið barnslega trú á Guð. Ég hef fengið
kjölfestu sem hefur gert mig örugga í því sem ég vil
byggja á ásarnt löngun til að miðla öðrum af því,
segir Kristin.
Ahrifavaldar
Systkinin hafa fylgst að í flutningum rnilli lands-
hluta á uppvaxtarárunum og nú eru þau saman í
gospelkórnum, en þau eru einu systkinin sem þar
starfa.
- Við erum mikið saman og höfum raunar alltaf
verið. Við fengum bæði snemma áhuga á tónlist og
gospel, segir Kristin. Tónlistarsmekkurinn var að
vísu ekki sá sami, Evie Törnkvist var fyrirmynd
Kristínar stóru systur, en Ole Edvard hlustaði mest á
pönksöngkonuna Ninu Hagen. En 16 ára gamall var
hann svo heillaður af gospeltónlist að hann gerði
samning við kristilega bókaverslun í Oslo urn að
senda sér allar nýjar plötur með Andrae Crouch til
Nesna, þar sem þau bjuggu. Hann var því alltaf
búinn að fá þær daginn eftir að þær bárust til
Noregs.
Gób kjölfesta
Systkinin hafa hlotið góða kjölfestu eftir að hafa
alist upp í heimatrúboðshreifingunni:
- Ég var aldrei þvinguð til að taka þátt í starfinu
en ég fékk góðar fyrirmyndir og lífsglaða trú. Það
hefur hjálpað mér að taka eigin afstöðu og gera rnér
grein fyrir á hverju ég vil byggja í samhengi við
Og nú eru þau systkinin „orðin stór“ og sameinuð
í tónlistinni í gospelkór sent hefur m.a. sungið
söngva sent gospelkóngurinn Andrae Crouch hefur
samið sérstaklega fyrir kórinn. Það er löng þróun
fyrir gospelunnandann frá Nesna. Nú ferðast þau
víða um heim og halda tónleika. Oslo Gospel Choir
, ... .. „ * Systkinin Kristin og
er i senn stjornur og songtruboðar. Q|e Edvard Reitan