Bjarmi - 01.10.1995, Blaðsíða 24
KRISTNIBOÐ
Sigur veitist fyrir kraft Jesú
Hann stób þarna
eins og höfðingi
Margrét Hróbjartsdóttir, sem starfar með manni sínum Benedikt
Jasonarsyni í Konsó í Eþíópíu, fór fyrir stuttu í heimsókn til
þorpsins Dokottó en þangað er u.þ.b. 20 mínútna gangur frá
kristniboðsstöðinni. Þar hitti hún Barrisja Germó, fyrrum seiðmann,
sem fyrstur Konsómanna játaði trú á Jesú Krist. Margrét skrifar:
„Við fórum fótgangandi - það jók á ánægju ferðarinnar - og
gengum gegnum akrana sem eru iðjagrænir núna. Utsýnið varð
stórkostlegra eftir því sem nær dró Dokottó. Við fengum náttúrlega
heilan skokk af krökkum á eftir okkur. Þau viklu öll taka í höndina á
okkur og ekki bara einu sinni heldur margoft.
Við gengum um og skoðuðum og komum svo heim til Barrisja
Germó. Það tók smástund áður en hann kom út úr kofa sínum. Þegar
hann kom að lokum skildum við hvemig á stóð. Hann hafði í skyndi
fundið skárstu fötin sín en í flýtinum ekki tekist að klæða sig í þau
skikkanlega svo að það voru ósköp að sjá útganginn á honum!
En það gleymdist fljótt þegar maðurinn fór að tala. Hann fagnaði
komu okkar og fór að segja okkur frá lífi sínu áður en hann gerðist
kristinn, hvemig Satan lék hann og stjómaði honum með harðri hendi
og svo hvemig liann komst til trúar á Drottin. Hann sagði frá trúfesti
Drottins öll þessi 40 ár sem liðin em síðan.
Hann stóð þama eins og höfðingi, eins og sigurvegari fyrir kraft
Jesú, maður sem gefur Drottni dýrðina og þakkar honum einum.
Fyrst hélt hann að ég væri Elsa Jacobsen en þegar ég sagði honum
að ég væri kona „abba Konsó“ [þ.e. Benedikts, hann var stundum
nefndur svo áður fyrr| lifnaði yfir honum og hann faðmaði rnig aftur
að sér. Það hlýjaði mér um hjartarætumar.
Svo sagði hann: „Konan mín er veik. Farið þið til hennar og biðjið
fyrir henni.“ Það gerðum við. Þarna sat hún, þessi kona sem ég man
svo vel eftir í gamla daga, orðin svo lítil og grönn, með veika og
slitna fætur sem bera hana ekki lengur þótt hún sé lítil og létt. En hún
er andlega heil og var sannarlega tilbúin að taka á móti fyrirbæn og
þiggja hana með gleði.
Síðan kvöddum við og gengum fylktu liði til kirkjunnar nýju, með
Barrisja í broddi fylkingar, hnarreistan og beinan í baki. Við
trítluðum á eftir honum og allur bamaskarinn auk rnargra fullorðinna
sem bættust í hópinn.
Á meðan við biðum þess að komið væri með lykil að kirkjunni
stakk einhver upp á því að bömin færu að syngja um Jesú. Það stóð
ekki á því og áður en varði hijómaði söngurinn undurskær með
taktföstu klappi. Og andlitsdrættir og líkamsburðir undirstrikuðu enn
betur innri ákefð og gleði.
Síðan var komið með lykilinn og kirkjan fylltist á svipstundu.
Aftur hljómaði söngurinn um Jesú. Að því búnu sagði Barrisja
nokkur orð og endaði með Faðirvorinu á amharísku og tóku flestir
undir. Þetta var heilög stund.“
Fréttir af
kristniboös-
akrinum
Kristnibobar koma heim
Tvær kristniboðafjölskyldur em nýkomnar heim frá
akrinum í Afríku. Valdís Magnúsdóttir og Kjartan
Jónsson og börn þeirra komu hingað til lands 28.
júní frá Kenýu og þau Bima G. Jónsdóttir og Guð-
laugur Gíslason ásamt dætrum sínum tveimur 3. júlí
frá Eþíópíu.
Kristniboðsvinir fögnuðu þeim á samkomum í
Reykjavík, síðarnefndu fjölskyldunni 11. júlí en þeim
Kjartani 13. ágúst. Var áhrifaríkt að heyra „glóð-
volgar” fréttir og frásagnir af starfinu ytra og þeim
mikla árangri sem orðið hefur á starfssvæðunum.
Tækifæri kristniboðanna og innlendu kirknanna til að
boða fagnaðarerindið og létta margvíslegri neyð
meðal fólksins eru óteljandi. Má með sanni segja að
uppskeran er mikil en verkamenn fáir. Skúli Svavars-
son og Páll Friðriksson fluttu hugvekjur á samkom-
unum.
Valdís og Kjartan hafa unnið samtals 12 ár í
Kenýu en þau Birna og Guðlaugur voru að ljúka
fyrsta fjögurra ára starfstímabili sínu í Eþíópíu.
Kristín Bjarnadóttir kennari í Nairóbí er nú eini
fulltrúi Kristniboðssambandsins í Kenýu. í Eþíópíu
eru þeir tíu. Kjartan hefur þegar hafið störf hér
heima á vegum Kristniboðsambandsins ásamt þeim
Skúla Svavarssyni, Friðrik Hilmarssyni og Benedikt
Amkelssyni.
Þess má geta að norski prédikarinn Gunnar
Hamnöy talaði á almennri samkomu í húsi KFUM
og K við Holtaveg í Reykjavík 8. ágúst. Gunnar
hefur heimsótt ýmsa kristniboðsakra og flutti hann
mjög athyglisverðan kristniboðsþátt með myndum
frá Voitó í Eþíópíu. Auk þess söng hann og
prédikaði. Var hann hér á ferðalagi með hópi landa
sinna.
Margir minnast Ólafs
Eins og fram kemur hér í blaðinu eru liðin 100 ár
frá fæðingu Olafs Olafssonar kristniboða en hann