Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.05.1998, Page 27

Bjarmi - 01.05.1998, Page 27
Dauðinn dd en lííið lifir Dauðinn dó en lífið lifir, lífs og friðar sólin skær ljómar dauðadölum yfir, dauðinn oss ei grandað fær, lífið sanna sálum manna sigurskjöld mót dauða ljær. Kóngur lífs á krossi deyddur krónu lífs mér bjó hjá sér, dapur nú er dauði neyddur dýrðarlíf að færa mér. Þótt hann æði, þótt hann hræði, það ei framar skaðvænt er. Hann, sem reis með dýrð frá dauða, duft upp lætur rísa mitt, leyst úr fornum fjötrum nauða íyrir blóðið helga sitt. Hold og andi lífs á landi lífgjafara sinn fá hitt. Jesús minn, sem dauðann deyddir, deyja gef mér eins og þú og við þig, í ljós er leiddir lífið, æ að halda trú. Lát mig þreyja þér og deyja, þrá mín heit og bæn er sú. - Helgi Hálfdánarson

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.