Bjarmi - 01.03.1999, Blaðsíða 30
Þegar við speglum okkur sjálf og
prófum í ljósi orðs Guðs verður nið-
urstaðan ávallt sú sama: Andspæn-
is heilögum Guði og vilja hans erum
við brotleg og sek. Fagnaðarerindið
sem við fáum að heyra inn í þær að-
stæður er þetta: „Páskalambi voru
er slátrað, sem er Kristur." Þess
vegna megum við byrja upp á nýtt
með ósýrð brauð í stað hinna sýrðu.
Þess vegna getum við beðið hann að
fyrirgefa og hreinsa og þess vegna
getum við í hans nafni gengið fram í
nýrri breytni.
Föstutíminn er brátt á enda og
páskahátíðin framundan. Fastan er
tími iðrunar og endumýjunar sam-
félagsins við Guð, tími endumýjun-
ar hugarfarsins, tími andlegrar vor-
hreingerningar. Tökum því til.
Hreinsum burt allt það sem ekki
hæfir lífinu í Kristi, súrdeig illsku og
vonsku. Hann hefur gefið okkur
kraftinn til þess fyrir sinn heilaga
anda. Gemm líf okkar að samfelldri
þakkarhátíð á grundvelli þess sem
Jesús gerði og látum þakklætið
sjást í lífi okkar. „Höldum því hátíð
[...] með ósýrðum brauðum hrein-
leikans og sannleikans."
Helstu hjálpargögn:
• Barret, C.K. 1971. The first Epistle
to the Corinthians. London.
• Douglas, J.D. (ed.) 1980. The New
lllustrated Bible Dictionary l-lll.
Leicester.
• Gilbrant, T.h. (red.) 1977-80. Studie
Bibelen 1-5. Oslo.
• Gilbrant, Th. (red.) 1984-90. Illustrert
Norsk Bibelleksikon 1-8. Oslo.
• Guthrie, D. (ed.) 1977. The New Bible
Commentary Revised. Leicester.
• Richardson, A. 1958. Introduction to
the Theology of the New Testament.
London.
• Dr. Martin Luthers predikener over
alle son- og helligdagers epistler samt
lidelseshistorien. 1971. Det Evang-
elisk-Lutherska kirkesamfunn.
Tonsberg, Norge.
Móse í teiknimynd
Fáein orð um kvikmyndina
The Prince ofEgypt
Kvikmyndin Egypski prinsinn
hefur verið sýnd í kvik-
myndahúsum hér á landi
um allnokkurt skeið. Mynd-
in hefur reyndar verið sýnd
víða um heim við miklar vinsældir. Þetta
er ekki í fyrsta sinn sem sagan af Móse
og frelsun ísraels úr ánauðinni í Eg-
yptalandi lendir á
hvíta tjaldinu og
nægir í því sam-
bandi að minna á
myndina Boðorðin
tíu með Charlton
Heston í aðalhlut-
verki. En nú er
það teknimynd í
fullri lengd sem
bandaríska kvik-
myndafyrirtækið
Dreamworks hefur
framleitt. Ein-
hverjir kunna að
spyrja sig hvaða
erindi sagan af
Móse á í teikni-
mynd og hvort út-
koman verði ekki
annað hvort afbökuð eða einfölduð
m}md af dramatískum sögum Biblíunn-
ar. Verður Móse ekki bara enn ein
teiknimyndahetjan? Er þetta ekki bara
enn ein barnamyndin sem byggð er á
biblíuefni framleidd til að græða á
henni?
Reyndin er sú að myndin Egypski
prinsinn er mjög vönduð teiknimynd.
Hún er e.t.v. hvorki barnamynd né full-
orðinsmynd en hentar líklega flestuni
aldurshópum sem hafa gaman að
teiknimyndum. Við gerð hennar er beitt
nýjustu tækni þar sem blandað er sam-
an tví- og þrívídd og teiknuðum og
tölvugerðum myndum. Augljóst er að
vandað hefur verið til verka og mikil
vinna hefur verið lögð í myndina. Sem
dæmi má nefna að að baki ferðinni
gegnum Rauðahafið, sem tekur um fjór-
ar mínútur í
myndinni, eru
yfir 300 þúsund
vinnustundir.
Þegar upp var
staðið kostaði
gerð myndarinn-
ar 70 milljónir
dollara.
V i n s æ 1 d i r
myndarinnar
sýna að hún
hittir í mark hjá
breiðum hópi
kvikmyndahúsa-
gesta. Orsökin er
ekki bara sú að
sagan um Móse
er góður efnivið-
ur í kvikmynd
heldur ekki síður að áhugi á teikni-
myndum hefur aukist á síðustu árum
urn leið og tækninni við gerð slíkra
mynda hefur ileygt fram. Þá leitast þeir
„Draumasmiðjumenn" við að sýna bibl-
íutextanum trúmennsku þrátt fyrir að
þeir taki sér „eðlilegt skáldaleyfi" og
bæði trúarlegir og siðferðilegir þættir
sögunnar fá að njóta sín. Jeffrey
Katzenberg, framleiðandi myndarinnar,
hefur í viðtali lagt áherslu á mikilvægi
þess að fylgja sögunni í 2. Mósebók eins