Heima er bezt - 01.04.1952, Side 8

Heima er bezt - 01.04.1952, Side 8
104 Heima er bezt Nr. 4 anna, skildi konuna og börnin eftir í kotinu, hraðaði för sinni, lagði saman nætur og daga. Hann kom heim með tvær hendur tómar. Þá var kýrin steindauð og stirðnuð í fjós- básnum, ferlega uppblásin; — blá og tútin, eins og ókind úr mergjaðri draugasögu. Hann taldi þó ekki frágangssök að nýta ganglimina. En konan kvað þau geta drepið börnin á annan hátt en að narra ofan í þau baneitrað pestarkjöt. Væn- legra væri að leita á náðir ná- ungans. — Ójá, svona var þá komið. Fyrir sex árum hafði hann hafið búhokur í hjáleigukotinu. Og unga stúlkan við hlið hans var bjartsýn og heit í ást sinni, lét sig engu skipta hrakspár ættingja, sem töldu, að Stein- móði væri í blóð borinn ræfils- dómurinn. — Hrakspámenn virðast oft gegnsýrðastir af sönnum innblæstri. í kotinu var lítið olnboga- rými; töðufallið var rýrt, og engjablettirnir ræpur í úthaga. Og óheppnin elti hann þindar- laust. Kindanna hans beið all- staðar tortíming. Stundum drakk tófan úr þeim blóðsop- ann, á haustin drápust þær úr bráðapest, á vorin úr orma- veiki. Og í dag hafði presturinn þjófkennt hann. Steinmóður arkaði heimleiðis, leit inn í kindakofann. Þar var sauðfjáreign hans, — þrjár ær. Þær lágu í krónni, teygðu fram fríð höfuðin og jórtruðu, frjáls- legar, lagðprúðar, hreyfðu sig ekki, þó að eigandinn gengi á milli þeirra. Þar var vinur á ferð. Hann hallaði sér á garða- bandið, í svip hans var hyldjúp örvænting. Og það er svo erfitt að dæma vin til dauða. Hann gekk í bæinn um dag- setur. Baðstofan var lítil og nötur- leg, timburklæddir veggir, mold- argólf. Þar inni var fátt um hús- muni, stór kista — lokið kúpt — spunarokkur, ullarkambar, kembulár með höfðaletri. Við hvorn vegg var rúmbálkur. Grútarkola bar daufa birtu, súð og sperrur voru svartar af raka og íúa en flúraðar hvítum hrím- hríslum. Og ljósgeislinn frá fífukveiknum glitraði í þessari náskrift vetrarins. Konan dútlaði við prjóna- skap. Það voru djúpir kulda- bollar í höndum hennar, myrk- ur í dökkum augunum. Hjónin litu hvort á annað — í skilningsríkri þögn. Orðum fylgir stundum óbærilegur sárs- auki. Steinmóður ræskti sig vandræðalega, tyllti sér niður úti í horni og fór að flétta hnappheldu. Konan horfði að- gerðarlaus í gaupnir og and- varpaði. Tvö börn, piltur og stúlka, rísluðu að leggjum og kjúkum í öðru rúmfletinu. Hann var fjögra ára, hún ári yngri. Þau voru vannærð, kolsvartir baug- ar um stór, útstæð augun, hreyfingar fálmkenndar. Þau léku sér hljóð og kyrrlát, gauf- andi hjárænuleg, eins og gam- almenni sem rorra í slævandi tilgangsleysi og bíða umskipt- anna. Móðirin gekk til þeirra, strauk um innfallna kinn drengsins. Stúlkan saug vísifingurinn, horfði á hana grafalvarleg og rannsakandi. „Farið þið nú að sofa, píslirn- ar mínar,“ sagði konan. Orðin komu í gusum, eins og henni lægi við köfnun. Börnin spenntu greipar á brjóstunum, mæltu fram kvöld- bænirnar. Móðirin laut höfði, hnípin; faðirinn hætti að flétta. starði brúnaþungur út í skjáinn. Drengurinn þuldi hreimþýðum rómi, litla stúlkan tók undir með skrykkjóttum áherzlum, — — vængjuð orð ómuðu í bað- stofukrubbunni, gerðu gælur við fornfálegt rjáfrið og harð- troðið moldargólfið: „Lífsins hertoginn líf og önd, legg ég í geymslu þína; mér þín almættis hlífi hönd, hún verndi mig og mína; * svefndúrinn gef þú sætan mér svo skal ég vegsemd færa þér sól dags nær lít ég skína.“ Síðan fóru börnin með „Faðir vor“, tveir kornungir smælingj- ar. Þau voru ekki vöknuð til vit- undar um brigð og duttlunga tilverunnar. Hjal þeirra minnti á mildan blæinn, sem einn sól- ríkan vordaginn kemur með regnþrungin ský, svífandi sunn- an úr höfum. Þá er leysingin í nánd. En þegar börnin báðu um að gefa sér daglegt brauð, tók litla stúlkan allt í einu andköf, lauk bænalestrinum, varpaði af sér gærufeldinum, settist upp. „Mamma, guð hefur gleymt að koma með matinn í ddag — — sendir guð okkur mat á morg- un, mamma?“ „Við verðum að vona það, væna mín,“ sagði móðirin. Rödd hennar var hljómlítil, nærri brostin. Hún hlúði að börnun- um, breiddi vandlega yfir þau gæruskinnin, hraðaði sér svo út úr baðstofunni. Eftir nokkra stund voru börn- in sofnuð. Þau lágu í faðmlög- um, gnístu tönnum og sífruðu. En í eldhúsinu, við sótuga hlóðarsteinana, sat ung kona. Fram í koldimm og þröng göng- in bárust sár ekkasog. III. Steinmóður dró klinkuna frá bæjardyrunum, smeygði sér laumulega út fyrir hurðina, þrýsti henni hljóðlega í falsinn. Hann nam staðar á varinhell- unni, hryllti sig, dró prjóna- hettuna niður á eyrun og gáði til veðurs. Tunglið var fullt, rambaði hátt á himni, innikróað í risa- stórum rosabaug. Norðurljósin bylgjuðust, sviflétt og litfögur. Frá norðri færðist þykk hríðar- kápa um loftið. Það var blæja- logn, hljóðbær kyrrð. Steinmóður ranglaði inn í smákofa að húsabaki, tók þaðan bandlykkju, flangraði svo fram á túnbalann. Þar tvísteig hann, réri fram á fótinn, var með vom- ur, hvort hann ætti að snúa við eða halda áfram. Hann háði stríð við sjálfan sig og var þungbúinn. Nokkru seinna stóð hann við stórt sauðahús. Hurðin var í hálfa gátt; stækan yl lagði inn- an úr húsinu. Steinmóður smokraði klúrun- um úr kengjunum, opnaði hurð- ina. Hann þreifaði fyrir sér, paufaðist inn í króná og greip fyrstu kindina, sem varð fyrir honum. Það var stórhyrndur sauður, föngulegur. Fórnardýrið tók snarpt viðbragð, er það varð

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.