Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1953, Page 23

Heima er bezt - 01.12.1953, Page 23
Nr. 12 Heima er bezt 375 fangamark eiganda með latínu- stöfum. Ólafur var enginn lista- skrifari og lagði því ekki í að grafa skrifletur. Ég hef séð mörg þessi signet og er líklega eitthvað til af þeim enn. Ólafur mun hafa átt það til að vera nokkuð ófyrirleitinn og mikill fyrir sér. Ég heyrði þá sögu af honum, sem nú skal greina. Ólafur var á ferð í Reykjavík í maímánuði. Þá hitti hann mann á götu. Ekki veit ég, hvort þeir þekktust áður eða ekki, en þeim kemur saman um að fara í glímu. Ólafur var glímumaður og var forvitinn að reyna sig. Glím- an endaði þannig, að Ólafur fót- brotnaði, en stóð þó á öðrum fæti. Skipar hann þá þeim, sem hann glímdi við, að hlaupa sem bráðast í burtu og hlýddi hann því. Þá var minni umferð á göt- unum en nii. Þetta var vestar- lega á Vesturgötu, sem hét þá Hlíðarhúsastígur. Skömmu eftir að þetta skeði kom maður eftir götunni og gekk rétt hjá Ól- afi, þar sem hann stóð á göt- unni. Ólafur hefur engin orð við aðkomumann þennan, en slær hann vænt högg. Þetta hefur manninum víst þótt borgunar- vert og slær hann aftur. Þá dett- ur Ólafur og segir, að hann hafi stórmeitt sig og líklega fótbrotið. Það reyndist rétt, að hann var fótbrotinn. Svo lá hann í fótbroti hjá Bjarna Oddssyni í Garðhús- um. En maðurinn, sem sló hann, varð að borga legukostnaðinn. Maðurinn, sem hann glímdi við, var séra Stefán sterki, sem prestur varð á Ólafsvöllum og síðast á Mosfelli í Grímsnesi. Þá var séra Stefán í skóla og það gat haft óþægindi í för með sér, hefði það vitnast, að hann væri valdur að þessu slysi. Bjarni Oddsson í Garðhúsum var alda- vinur Tungufeðga, Þorsteins og Ólafs, og til hans leitaði Ólafur síðar, þegar honum lá á, eins og síðar mun getið. Þetta gerðist áð- ur en Ólafur fór að búa. Sá, sem þetta ritar, heyrði Bjarna sjálf- an segja sögu þessa. Sagði hann, að Ólafur hefði kennt sér sjálf- um um, hvernig glíman fór, því að hann hefði skorað á Stefán að glíma við sig. Eins og fyrr greinir flutti Ól- afur með heimili sitt að Kálf- haga í Kaldaðarneshverfi, var þar 1 ár og kom svo aftur að Tungu. Einhvern veginn var það svo, að sveitungum hans fannst hann ekki sami maður eftir það. Það var nú fyrst almennt talið heldur ólánsmerki í þá daga að éta hrossakjöt. Ekki heyrði ég þó neinn kenna því um bein- línis, hvernig ævi hans varð eft- ir það. En það heyrði ég beztu vini hans segja, að í Kálfholti hefði gæfan yfirgefið hann, eða aldrei farið með honum þangað, og ekki komið til hans að Tungu, þó að hann flytti þangað aftur. Breytingin á Ólafi var engin á framkomu hans né snilldarverk- um, og vinir hans urðu ekki var- ir við neitt. En nú var farið að gruna hann um þjófnað, bæði um ullarþjófnað á vorin og sauðaþjófnað á haustin. Svo sagði mér maður, Guðmundur Guðmundsson að nafni, sem var vinnumaöur á Úlfljótsvatni í 12 ár hjá Jóni Þórðarsyni, mesta sómabónda. Á Úlfljótsvatni voru þá margir sauðir og fóru náttúr- lega víða um nágrennið, eink- um á vorin og framan af hausti. Hann sagði, að frétzt hefði af sauðum eða gemlingum á vorin í ull nálægt Tungu, þá hefðu þær kindur jafnan komið ullarlausar og aldrei hefði verið skilað ull af þeim. Eins hefði þetta verið á haustin, að ef sézt hefði kind frá Úlfljótsvatni í Tunguhögunum, þá hefði sú kind aldrei sézt eft- ir það. „Húsbóndinn vildi ekk- ert um þetta tala,“ sagði hann, „en sagði eitthvað á þá leið, að það væri bezt, að utansveitar- menn kvörtuðu, ef eitthvað væri athugavert við framferði Ólafs“. Þessi sögn Guðmundar kom al- veg heim við það, sem ég heyrði foreldra mína segja, að því leyti, að þau drógu það ekki í efa, að Ólafur hefði verið sauðaþjófur. En aldrei höfðu þau haft grun um, að hann hefði stolið frá þeim. En svo er það haustið 1876 í Ölfusréttum. Þar var Jón bróð- ir minn, sem síðar var bóndi í Hlíð. Hann var þá 15 ára. Snemma var hann fjárglöggur og náttúraður fyrir sauðfé. Hann sér eitthvað af lömbum í rétt- unum með marki Ólafs í Tungu, að hann hélt í fyrstu. En við nánari athugun vantar á þau eina standfjöður til þess að markið sé rétt. Hann fer því til Ólafs, sem var líka í réttunum, og spyr hann, hvort hann eigi þessi lömb og hvort draga eigi þau í hans dilk. Ólafur játar því og segir, að gleymst hafi um vor- ið að setja á þau standfjöðrina. Lömb þessi urðu 16 talsins og eitt þeirra sérstaklega auðþekkt — holsóttur geldingur. Þessu er nú enginn gaumur gefinn. Ól- afur hirðir lömbin og setur á þau standfjöðrina, sem vantaði. Svo líður fram á vetur, líklega fram yfir áramót 1876—77. Þá kvisast það um sveitina, að ókunnur maður hefði verið á ferð um sveitina, sem erindi hefði átt að Tungu, og verið þar illa tekið erindum hans. Maður þessi hafði flutt austan úr Rang- árvallasýslu vestur á Hvalfjarð- arströnd eða eitthvað þangað vestur, en fólkið var búið að gleyma sveitarnafni og bæjar- nafni. Hann sá lömbin í Tungu og þar með holsótta geldinginn. Ólafur snerizt illa við, að ókunn- ur maður ætlaði að gera sig að sauðaþjóf. Fór maður þessi svo heim til sín aftur og mun hafa komið á einhverja bæi í Upp- Grafningi og sagt þar af erind- um sínum að Tungu og viðtök- um. Nú líður vorið og sumarið fram í ágústlok eða þar um. Þá kemur sýslumaðurinn í Árnessýslu, sem þá var Þorsteinn Jónsson á Kiðabergi í Grímsnesi, að Ás- garði í Grímsnesi síðari hluta dags og biður um ferju yfir Sog- ið að Bíldsfelli. Á Bíldsfelli bjó þá Jón Ögmundsson, hreppstjóri Grafningshrepps, sem sagði mér frá þessu. Sýslumaður var flutt- ur yfir Sogið eins og hver ann- ar og engum datt í hug að spyrja hann um erindi. Daginn eftir sá- ust frá Ásgarði tveir menn ganga til og frá um túnið á Bílds- felli og virtist fólki þeir vera að ræða um eitthvert vandamál. En enginn gat látið sér detta í hug, hvað það mundi vera og ekki heldur hverjir mennirnir myndu vera, nema ef sýslumaður mundi helzt vera annar þeirra. Nú er að segja frá sýslumanni. Hann er nóttina á Bíldsfelli hjá Jóni

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.