Heima er bezt - 01.12.1953, Síða 40
392
Heima eh bezt
Nr. 12
Árið um kring halda skip vor uppi reglubundnum samgöngum á milli hinna dreifðu hafna á landinu,
og yfir veturinn eru þetta oft einu samgöngutækin, sem fólk getur treyst til að skila farþegum og farmi
heilum og óskemmdum í höfn. Þess á milli eru fjölþættir möguleikar til flutnings, sem fela þó ekki í
sér neitt varanlegt öryggi um samgöngur, og er það því hagsmunamál landsbúa sjálfra að beina sem mest
viðskiptum til vor. Með þvi styðja þeir og styrkja þjónustustarf vort og stuðla að því, að það geti aukizt
og batnað.
Taxtar vörir fyrir vöruflutning eru yfirleitt án tillits til vegalengdar, þar eð þjónusta vor miðar að
því að jafna nokkuð aðstöðu landsbúa til samgangna, og er þess vænzt, að þeir, sem betur eru settir
varðandi samgöngur, skilji þetta og meti.
Skip vor eru traust og vel út búin og skipshafnirnar þaulæfðar, og er þetta mikils virði fyrir viðskipta-
mennina, enda viðurkennt af vátryggingarfélögunum, sem reikna þeim, er vátryggja, lægsta iðgjald fyrir
vörur sendar með skipum vorum.
Þetta fyrirtæki er eign stærsta félagsins á landinu, þjóðfélagsins. Sumum finnst það félag svo stórt,
að þeir finna vart til skyldleikans eða tengsla við það, en sá hugsunarháttur þarf að breytast.
í SKIPAÚTGERÐ RÍKISINS
i
i
!
Gleðileg jól
og
farsælt komandi ár j
i
Búnaðarbanki Islands |
Austurstræti 5 — Reykjavík