Heima er bezt - 01.10.1957, Page 23

Heima er bezt - 01.10.1957, Page 23
Fagraskógarfjall og Grettisbœli. Talið er, að Grettissaga í núverandi mynd sé rituð um 1300, en ef til vill hafa verið til af henni þættir, rit- aðir fyrr. Það líða því 250—300 ár milli þess, að atburð- imir gerðust, og þar til sagan er skráð. Talið er, að aldur hraustra manna á þessum öldum hafi verið um 60 ár. Ekki hafa þá nema 5—6 ættliðir flutt þessa sögu frá manni til manns. Aldraður faðir segir ungum syni sínum söguna um afreksmanninn og útlagann, sem hvergi átti skjóli að fagna í fátældegum mannabústöðum, en neyddist til að lifa sem útlagi í hell- um og ldettaskorum. Enginn gleymir þessari sögu, sem heyrir hana einu sinni, þar sem hún er mjög sorgleg og lýsir jafnframt karlmennsku, heljarafli og gáfulegum tilsvörum. Þannig berst sagan frá manni til manns, og bent er á örnefnin til sönnunar sögunni. Þegar ég var ungur og átti heima í nágrenni við Grettisbæli, trúði ég sögunni svo bókstaflega, að mér kom ekki til hugar að gaman væri að klifra upp að bor- unni (gatinu í tindinum) og vita, hvort þar sæjust nokk- ur merki þess, að þar hefði maður dvalið lengri eða skemmri tíma. Mér kom það ekki til hugar, að forfeður mínir, Mýramenn eða Hnappdælingar, hefðu skáldað þessa sögu og gefið þessi örnefni til að sanna lygasögu sína. Varla hefði nokkrum manni á þeim öldum heldur dottið sú fjarstæða í hug, því að ekki hefur lygasagan þá verið í hávegum höfð. Og ég er að nokkru sama sinnis enn. Sigurður Vigfússon hefur maður heitið. Hann var gullsmiður að atvinnu en hafði mikinn áhuga á fomum fræðum. Hann var um tímabil forstöðumaður Þjóð- minjasafnsins og rannsakaði þá sögustaði víða um land. Hann lagði það á sig að klifra upp að borunni í Grettis- bæli og athuga staðinn. í skýrslu hans segir meðal ann- ars þetta: Þeir Sigurður Vigfússon og fylgdarmaður hans klifr- uðu víða um fjallshrygginn, sem nefndur er Grettis- bæli. Þeir klifraðu um snarbrattar skriður, hálar, þver- brattar móhellur og strýtumyndaða tinda. Víða urðu þeir frá að hverfa, þar sem ókleift reyndist. Þeir fundu tvö göt í gegnum hæsta tindinn og eitt gat neðar, í gegn- um móbergsbrík. Ekkert af þessum „borum“ eða opum í gegnum tindana var svo stórt, að Grettir eða nokkur annar maður hefði getið búið um sig þar. Til þess voru bríkurnar of þunnar og opin of lítil. Þeir félagar gáfust þó ekki upp við leitina og klifu víðar um tindana á þessum einkennilega fjallshrygg eða kambi, og loks fundu þeir stað, sem ef til vill getur ver- ið leifar af sjálfu bcelinu. Þessi rannsóknarför var farin árið 1891. Þessum stað lýsir Sigurður Vigfússon í skýrslu sinni um þessa rannsóknarför. Tek ég kaflann orðréttan hér upp: „Síðan snerum við upp í norðurhlíð tindsins, og er tindurinn þar mjög einkennilegur, því að þar standa Heima er bezt 343

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.