Heima er bezt - 01.10.1957, Blaðsíða 28

Heima er bezt - 01.10.1957, Blaðsíða 28
Tónlistarskólinn hélt æfingum áfram í sumarleyf- inu. Jenný og Jóhanna voru báðar í tónlistarnáminu. Jóhanna lék á hljóðfæri, en Jenný æfði söng. Hún þótti hafa fagra rödd. Oft voru æfingar heima á heimil- unum. Fósturforeldrar Jennýjar voru upp með sér af hinum ágætu hæfileikum fósturdótturinnar, en þeim þótti þó námið ganga ofseint. Líka fannst þeim, að æfingarnar tækju ofmikinn tíma frá skólanáminu. Það var því gott að geta notað sumarleyfið til söngæfinga. En Jóhanna átti jrænda og frænku í Rotterdam. Þau voru farin að eldast og lifðu mikið í gamla tímanum. Heimili þeirra var fábrotið, en hreinlegt, og heimilisregl- ur strangar. Þau höfðu ætíð haft þann sið, að bjóða unga frændfólkinu til sín í sumarleyfinu. Nú höfðu þau fyrst boðið Sesselju, en hún gat ekki yfirgefið unn- ustann, þá var Karli boðið, en hann ætlaði að lesa í sumarleyfinu, en þá var það Jóhanna, sem varð að þiggja boðið. Hún sætti sig örlög sín, en hana langaði ekki neitt. Enn var þó dagur til stefnu, en áætlað var að hún ætti að dvelja þar í hálfan mánuð. Jóhanna skrifaði gömlu hjónunum og kvaðst þiggja boð þeirra með mikilli ánægju. En þá varð frænka hennar gamla svo hrifin, að hún skrifaði Jóhönnu samstundis svarbréf og bauð henni að hafa einhverja vinstúlku sína með sér. Hún sagðist skilja það, að skemmtilegra væri fyrir þær að vera tvær saman. Þær gætu þá skemmt sér betur. Þær mættu líka taka reið- hjólin sín með. „Þetta var fallega gert af frænku,“ sagði mamma Jóhönnu hrifin, og Jóhanna andvarpaði af hrifningu. „Þetta var yndislegt. Alveg ljómandi.“ En þá kom vandinn að velja sér ferðafélaga. Hverja af leiksystrum sínum ætti hún að taka með. Einhver vondur púki hvíslaði í eyra henni, að leiðinlegast væri að láta nokkra vinstúlku sína sjá, hve fátæklegt og gamaldags væri hjá frænku, og eins hlytu þær að taka eftir hvað hún væri hljóðvillt. Henni datt strax Jenný í hug. Líklega væri lang- bezt að bjóða henni. Jóhanna var ekki lengi að hugsa sig um. Hún greip hatt og kápu í anddyrinu og hljóp af stað til Jennýjar. Þar hitti hún ekki vel á. Frúin og húsbóndinn höfðu einmitt lagt sig eftir hádegisverðinn, en Jenný sat úti í horni og dottaði yfir mannkynssögunni. Frúin vaknaði ekki, er Jóhanna barði að dyrum, en fóstri Jennýjar stökk á fætur, greip jakkann sinn og vakti alla með sinni þrumuraust, er hann kallaði: „Kona! Jóhanna er komin hér!“ Þetta dugði. Frúin áttaði sig fljótt, settist upp og sagðist alls ekki hafa sofið. Hún ýtti stól til Jóhönnu, sem stóð hálfvandræðaleg á miðju gólfi, og bauð henni sæti. Jóhanna bar strax upp erindið. Hún lét sem það væri fyrir sig gert, ef Jenný gæti komið með sér. Hún sagði, að Jenný gerði sér mikla ánægju, ef hún gæti þegið boðið, og komið með sér til Rotterdam. Þá gat Jenný ekki stillt sig lengur, en sagði hrifin: „Ó, hvað það væri gaman.“ Frúin sagði ekki neitt. Húsbóndinn ekki heldur. í stofunni ríkti alger þögn. Loks kom fyrsta spurningin frá frúnni: „Hvað finnst þér, góði minn.“ Maðurinn hennar snippaði nokkrum sinnum, strauk magann virðulegur og hátíðlegur, og hóf þannig mál sitt og lagði áherzlu á hvert orð. „Það er mjög vingjarnlegt af frænku þinni, Jóhanna, að bjóða þér að taka einhverja vinstúlku þína með þér. Ég get ekki annað en dáðst að því. En hvað Jennýju viðvíkur, þá veltur samþykki mitt alveg á því, hvort hún nær prófi í vor uppúr bekknum eða ekki.“ Þetta var það versta svar, sem hægt var að fá, fannst Jóhönnu. Hún leit út undan sér til Jennýjar, en hún hristi bara höfuðið. „En ég þarf að vita þetta fyrr,“ tautaði Jóhanna. „Ég þarf að gefa frænku ákveðið svar.“ „Jæja, þá verður þú að fá að vita það hjá Jennýju. Hún hlýtur að vita það nú þegar, hvernig útlit er hjá henni með það að ná prófi. Heldurðu að þú komist upp, Jenný? Eða situr þú kannske eftir í bekknum?“ Fóstri hennar hló háðslega. Hlátur hans benti til þess, að hann gæti vel svarað þessum spurningum, og ekki síður en fósturdóttir hans. Jenný leit snögglega upp, og harðir drættir mynd- uðust um munninn, og þar vottaði fyrir biturlegu brosi. Jú, víst væri gaman að sleppa héðan hálfsmán- aðartíma með Jóhönnu, en enginn skyldi komast að því, hve mikið hún þráði að komast að heiman. Það kom þessu fólki ekkert við. Hún stillti sig því sem hún gat og svaraði rólega, en hún gat þó ekki að því gert, að rödd hennar titraði lítið einn: „Segðu foreldrum þínum, Jóhanna, að ég fái ekki að fara, því að frænka og frændi vissu það fyrir tveim- ur mánuðum, að ég kæmist ekki upp úr bekknum,“ — og nú hló Jenný kuldahlátri, — “og þau hafa þess vegna ákveðið að spilla allri gleði minni og banna mér allt, sem mér er til ánægju. Þetta á að vera hegning fyrir ódugnaðinn.“ Fóstri Jennýjar varð myrkur á svipinn, er hann sá að litla fósturdóttir hans hafði séð í gegnum blekk- ingarvefinn, en veslings Jóhanna stóð þarna vandræða- leg, og vissi ekki, hvernig hún ætti að taka þessu. Hún tautaði eitthvað um, að sér þætti þetta hræðilega leiðinlegt, og flýtti sér svo út, þar sem henni fannst andrúmsloftið í stofunni þrungið af harðýðgi og mann- vonzku. Jenný fylgdi henni til dyra. Hún gat þá ekki harkað af sér lengur, en fleygði sér grátandi um hálsinn á Jóhönnu, og sagði með þungum ekkasogum: „Þau geta aldrei unnað mér neinnar gleði.“ En hún rétti sig strax upp aftur og sagði um leið og hún brosti með társtokkin augun: „Þú mátt engum segja að ég hafi grátið. Vertu sæl, ágæta „kredit“. Skilaðu kærri kveðju til mömmu þinn- ar.“ Nú var mesta vandamálið fyrir Jóhönnu, hverri hún ætti nú að bjóða með sér. Líklegast yrði hún að leita til Lilju eða Nönnu, en þá var vandinn að gera upp á 348 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.