Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1959, Qupperneq 10

Heima er bezt - 01.12.1959, Qupperneq 10
Þorgerður Jónsdóttir Kort Elísson, frá Hrútafellskoti Fit Ekki var þetta vegna ókunnugleika á húsaskipan, þar eð segja má, að hann væri daglegur gestur í Holti. Fólkinu fannst þetta að vonum allundarlegt fyrir- brigði en talaði fátt um. Fannst því þeir bræður vera eitthvað öðruvísi en þeir áttu vanda til, venju fremur daufir og eins og að þeir væru „utangátta“ um margt. Þann 4. febrúar var veður hið ákjósanlegasta, sólskin og bjart en dálítill snjór á jörð. Var þess vegna ákveðið að leggja af stað þennan morgun jafnskjótt og Mýr- dælingar kæmu austanað, en fregnir höfðu borizt um, að þeir hefðu verið árla á ferð um morguninn. Menn inntu af höndum síðustu undirbúningsstörfin í flýti, og stóðst það á, að menn biðu ferðbúnir ytra, er Mýr- dælingana bar að garði á Efstu-Grund í fylgd með nokkrum Eyfellingum. Síðan var lagt af stað sem leið lá út með Fjöllunum og farið greitt í góðviðrinu. Eftir því sem utar dró, bættust fleiri í hópinn, því að allir vildu njóta samfylgd- arinnar og höfðu verið ferðbúnir. Komið var við í Hvammi. Þar bjó þá Magnús Sigurðsson. Hjá honum var til heimilis systir hans, Ástríður að nafni. Hún átti son þann, er Einar.hét, og var hann vinnumaður hjá Birni bónda á Efstu-Grund. Einar átti nú að fara til út- vers í fyrsta skipti og var ráðinn á sömu skútu og Svein- björn, bróðir húsbónda hans. Ástríður tók Sveinbjörn tali og bað hann fyrir Einar son sinn urn veturinn, að líta til hans og vera honum innan handar, þar eð hann væri óvaningur, færi nú í fyrsta skipti til útvers og ætti þar að lúta stjórn ókúnnugra manna. Sveinbjörn varð fár við og svaraði Ástríði því til, að ekki mundi þýða að biðja sig fyrir drenginn, „því að ekki mun ég lifa út veturinn. Verður þú þess vegna að biðja einhvern ann- an en mig, Ástríður mín, og vildi ég þó feginn verða við bón jDÍnni og piltsins.“ Eitthvað ræddu þau þetta hugboð Sveinbjörns, og reyndi Ástríður að eyða þessu, en ekki lét hann af skoðun sinni. Skildu þau svo talið í fullri vinsemd, og kvaddi Sveinbjörn hana innilega. Hópurinn hafði nú dvalizt góða stund í Hvammi og notið þar góðgerða. Var því lagt af stað, fólkið kvatt og bað það vermönnum alls góðs og fararheilla. Þegar komið var út að Seljalandsmúla voru alhr komn- ir, sem ætluðu að verða í samfylgdinni, og var því lagt út yfir Markarfljót. Nokkuð vatn var í fljótinu, en allt gekk að óskum, enda vanir og dugmiklir vatnamenn þarna á ferð. Þegar komið var upp úr fljótinu, þótti sjálfsagt að koma við í Dalsseli, sem var aðeins snertu- spöl frá yzta ál fljótsins, og var það gert. Fékk hópur- inn þar hressingu og góðar viðtökur í hvívetna. Dálítið var stanzað þar, en síðan haldið áfram vel greitt í fjör- ugri samfylgd sem leið lá út að Hemlu. Gekk ferðin yfir Þverá að óskum, þrátt fyrir töluvert vatn, sem í henni var. Ekki var nein teljandi viðdvöl að Hemlu, en haldið áfram að Eystri-Garðsauka. Gekk ferðin vel, og var lcomið þangað kl. 4 um eftirmiðdaginn. Þá bjó þar Sæmundur Oddsson, bóndi og póstafgreiðslumaður. Þegar að Garðsauka kom, var veður nokkuð farið að spillast og veðurútlit sérlega ljótt. Var auðséð, að mikil veðrabrigði voru í aðsigi. Ræddu menn mikið um, hvort halda skyldi ferðinni áfram undir kvöldið eða hvort gista skyldi í Garðsauka og nærliggjandi bæjum, þar eð veður færi ört versnandi. Urðu menn ekki á eitt sáttir hvað gera skyldi. Mest var þeim umhugað um að halda áfram, sem ætluðu út í Vestmannaeyjar, þar eð skip lá til byrjar í Reykjavík, sem ætlaði til Eyjanna. Vildu þeir Eyjavermenn umfram allt ná þeirri ferð og flýta þess vegna för sinni sem mest. Það voru þeir Jón Stef- ánsson í Gerðakoti, sem ætlaði að róa á mb. France, Ve. 159, Gísli Brynjólfur, sem ætlaði á sama bát og Páll Einarsson á Fornusöndum, sem ráðinn var á mb. Islancl, Ve. 118. Var töluverður ágreiningur í umræðum þess- um, sem lauk þannig, að allir afréðu að halda áfram ferð- inni að minnsta kosti út að Selalæk og Varmadal á Rang- árvöllum, nema þeir bræðurnir frá Efstu-Grund, Svein- björn og Gísli Brynjólfur. Hafði Gísli látið að orðum bróður síns um að verða eftir í Garðsauka. Sögðust þeir hvergi fara, og væri ekkert vit í slíku ferðalagi undir nóttina í þessu veðurúthti. Björn bróðir þeirra fór hins vegar með hópnum frá Garðsauka og skildi þar með þeim bræðrum, að sitt sýndist hvorum. Garðsauki. 410 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.