Heima er bezt - 01.12.1959, Blaðsíða 39

Heima er bezt - 01.12.1959, Blaðsíða 39
369. Þá verð ég nú að skilja hundana. Eg næ mér í stóra hríslu og ræðst um- svifalaust í bardagann. Og tæpara mátti það ekki standa. Mikki er þegar illa út- leikinn eftir átökin við ofurefli sitt. 370. Hér verða skjót umskipti við ó- vænt áhlaup mitt. Andstæðingur Mikka verður forviða en skilst brátt, að ekki er annað ráð vænna en að hörfa sem skjót- ast af hólmi með skottið milli fótanna. 371. Allt í einu heyri ég kallað kvíða- fullri röddu: „Kis, kis!“ í sama bili kem- ur til mín fram á milli runnanna gömul, feitlagin kona og svipast um í garðinum með mesta áhyggjusvip. 372. Mér skilst óðara, að hún muni vera að svipast um eftir kettinum og flýti mér að ná í hann. Kettlingurinn er ennþá hálfveinandi, og ég afhendi hann gömlu konunni, og hún grætur gleðitárum við endurfundinn. 373. Þakklæti gömlu konunnar er fram úr öllu hófi. Hún rekur þegar augun í það, að önnur buxnaskálm mín er rifin og að ég auk þess er blóðugur á hendinni eftir hundskjaftinn. Herðir hún nú að mér að koma með sér inn. 374. Á meðan hún er að funsa mig til og stjana við mig eins og bezta móðir, segir hún mér, hver hún sé, og kemur það þá upp úr kafinu, að hún er reynd- ar sjálf frú Thomson, ráðskonan á herra- setrinu. 375. Til aðstoðar sér við buxnavið- gerðina á mér og sáraumbúðirnar, hef- ur frú Thomson mjög vingjarnlega inni- stúlku sína, sem hún nefnir Huldu. Við Mikki verðum brátt beztu vinir hennar. 376. Það er svo sem ekki öllu lokið með þessum aðgerðum beggja kvenn- anna. Þegar búið er að dubba mig all- an upp að utan, er borinn á borð fyrir mig þvílík herramannsmáltíð, að það tekur engu tali að lýsa henni. 377. Og þá er nú Mikki ekki heldur settur hjá. Frammi í eldhúsi fær hann rokna skammt af ýmsu ágæti, sem á sína vísu jafnast á við mína máltíð. Og kisa situr á stól og gáir vel að þörfum gests- ins...

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.