Heima er bezt - 01.09.1960, Síða 6

Heima er bezt - 01.09.1960, Síða 6
Brot úr ævisögu Guémundar Einarssonar Hér fer á eftir stuttur kafli úr œvisögu Guðmundar \ I Einarssonar. Ævisagan er skrásett af Theodór Gunn- \ jj laugssyni og kemur út á þessu liausti undir nafninu \ \ NÚ BROSIR NÓTTIN. Útgefandi er Bókaforlag [ \ Odds Björnssonar og geta áskrifendur „Heima er bezt" \ \ gert þantanir sinar hjá afgreiðslunni, pósthólf 45, \ I Akureyri. \ ANDRÉS Á HVÍTÁRVÖLLUM. ann var rúmlega meðalmaður á hæð, þrekinn, vel vaxinn og hinn fyrirmannlegasti. Skap- harður þótti hann, og nokkuð ráðríkur í sveit sinni, enda forvstumaður í öllu. Stundum þótti hann mislyndur en raungóður. Eitt var það, sem Andrés þoldi ekki neinum, hvorki ungum né gömlum. Það var kjarkleysi og slóðaskapur. Sjálfur var hann mikill vaskleikamaður og virti dugnað og kjark framar öllu öðru. Á þessum árum var stór tarfur á Hvítárvöllum (kall- aðir Vellir í daglegu tali). Hann var ávallt hafður laus í kúnum og því óvinsæll, enda mannýgur. Hann gekk undir nafninu: Spánski boli. Eitt kvöld, snemma sumars, þegar ég var tólf ára, bað mamma mig að sækja kýrnar eftir venju. Ég vissi að þær voru með Vallakúnum vestur á Þrætutungu. Ég tók því brúna meri, sem mamma átti, og var hún bæði fljót og viljug. Svo reið ég af stað. Þegar ég kom að kúnum, gekk greiðlega að skilja þær, og hélt ég heim með mínar kýr. Spánski boli var að venju hjá þeim. Hann horfði á mig, murraði eitt- hvað og froðan vall út úr honum. En þetta kom svo oft fyrir áður, að svona lá á bola og fannst mér ekkert athugavert við það. Hann stóð líka alltaf á sama stað og gaf mér bara auga. Ekki var ég kominn nema stutt á leið, þegar ég sé að boli tekur undir sig stökk og stefnir á eftir mér. Lét þá illa í honum. Ég herði á kúnum og held, að boli sé fremur að elta þær en mig. Brátt komst ég að því, að svo var ekki. Hann leit ekki við þeim, en stefndi beint á mig. Lét ég þá Brúnku fara það sem hún komst, og dró hún ekki af. Ég fór að verða hálfhræddur urn mig, en þó hálfu hræddari um móður mína og litlu systkini mín, ef boli kæmist heim. Varð ég því að finna einhver ráð, en lítill var umhugsunartíminn. Ég stefndi því beint að fjárhús- unum heima, en sum þeirra voru dálítið frá bænum. Þeim verð ég ögn að lýsa. Yzt á túninu stóðu tvístæð hús, sem sáust ekki frá bænum. Þangað stefndi ég. Við þau var heytóft og rúmlega seilingarháir veggir úr torfi og grjóti umhverf- is hana. Mátti ganga úr húsjötu inn í tóftina. í húsinu voru mæniásar og stoðir undir, sem stóðu á jötugarð- anum. Breiður veggur var þar, sem tóftin og húsið kom saman. Upp á þann vegg var hlaðið hellugrjóti, sem haft var ofan á heyið á haustin. Og nú var ætlun mín að komast í þetta fjárhús. Fyrst í stað dró heldur sundur með mér og bola. En svo fór hann að draga ískygglega á Brúnku. Hún mæddist fyrr, enda farin að eldast. Þegar ég kom upp að svokölluðu húsbarði, en það var dálítil melhæð, sem húsin stóðu á, dró fyrir alvöru saman. Herti ég þá á merinni, en hún gat víst lítið meira. Stóð það alveg heima, þegar ég kom að fjárhúsdyrunum, þá rekur boli hausinn undir Brúnku svo hastarlega og með svo miklu afli, að hún skellur flöt. Féll hún frá dyrunum, en ég að þeim. Kom ég niður á hendur og fætur og var þá ekki lengi að skjótast inn í húsin. Ekki vannst mér þó tími til að láta aftur hurðina, því hausinn á bola var kominn í fjárhúsdyrnar. Hentist ég þá eins og örskot upp í garða og inn í heytóftina. Og boli kom þrumandi inn eina fjárhúskróna á eftir mér, en nemur staðar við tóftardyrnar. Ég klifra upp eitt tóftarhornið það hátt, að ég þarf ekki annað en kasta mér upp á vegginn. Þar fer ég að herma eftir bola. Ræðst hann þá í dyrnar öskuvondur, og ryðst inn í tóftina. En dyrnar voru í þrengsta lagi. Það mun boli hafa séð og því hikað við þær. Þetta var það, sem ég ætlaði honum. Nú hentist ég upp á vegginn og að grjóthrúgunni, sem var öðrum megin við tóftardyrnar, gríp vænar hellur og læt dynja á bola af öllum lífs og sálar kröftum. Og nú var ekki dregið af orkunni, sem til var. Eftir stutta stund var boli orðinn blóðugur á baki og haus, því rendurnar á hellunum snertu hann fyrst, eða svo var ætlun mín. Virtist hann þá verða óður og tryllt- ur af sársauka. Hann leitaði líka alltaf á að stökkva upp úr tóftinni, en hvort tveggja var, að hún var djúp, og svo fékk hann þá líka alltaf væna hellu í hausinn eða sem næst honum, svo hann hrökk til baka. Ég var víst orðinn jafntrylltur af vígamóði og boli, þegar hann réðist á Brúnku. Ég vissi varla hvað ég gerði. Síðast hentist boli í háalofti fram í tóftardyrnar og ryðst út. Fannst mér þá veggurinn skjálfa og allt húsið, enda tók hann með sér tvær mænistoðir í fátinu. Og svo var kastið mikið á bola, þegar út kom, að hann fór ekki á götuna, sem lá frá húsinu, heldur stefndi hann beint niður á Húsabarðið og í fúamýri, sem þar var fyrir neðan. í heimsku minni og trylltum hefndarhug tek ég staur, sem lá í húsinu, og hleyp á eftir bola, sem hélt beint strik yfir mýrina. Ékki leið þó á löngu, þar til ég nálg- aðist hann með reiddan staurinn, því boli fór að sökkva illa í. Og síðast sökk hann upp að kvið í mýrinni. Þá var markinu náð. Sveiflaði ég nú staurnum af öllum 294 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.