Heima er bezt - 01.09.1960, Síða 11

Heima er bezt - 01.09.1960, Síða 11
HALLDOR STEFANSSON: Þóréur Pálsson og Björg Hallclórsdóttir á Kjarna Inn og upp frá Akureyrarkaupstað, uppi við rætur vesturfjalla Eyjafjarðar, er býlið Kjarni í Hrafna- gilshreppi, kostabýli, sem nafnið bendir til, 36 hndr. að dýrleika eftir Johnsens jarðatali, og hafði verið sýslumannssetur um sinn. Þar bjó Gunnlaugur sýslumaður Briem á árunum 1807 til 1815. Nú er það komið undir Akurcyrarkaupstað, ábúð lögð niður og landið tekið til skógræktar. Árabilið 1823—1842 bjuggu þau á Kjarna Þórður og Björg, sem hér segir frá, og urðu landskunn vegna atgjörvi, mannkosta og margra mannvænlegra barna sinna. Áður höfðu þau búið á Sörlastöðum í Fnjóska- dal, sem síðar getur nánar. Hér verður nú horfið frá um sinn og sagt nokkuð frá ætt þeirra og fortíð. Fortíð og forfeður. Fyrst verður hér getið ættar Þórðar. Hann var fædd- ur á Þórðarstöðum í Fnjóskadal 1772, og ólst þar upp hjá foreldrum sínum, Páli Ásmundssyni og Guðnýju Árnadóttur, fram um tvítugs aldur. Þau bjuggu þar Eldmóðuárið en fluttu ári síðar að Sörlastöðum, og þar ólst Þórður upp til þroska aldurs. Það er sagt um Pál föður Þórðar, að hann hafi haldið fast við fornar venjur og það til sanninda, að hann hafi haldið hátíðlega helgra manna messur allar frá kaþólsk- um sið, klæðst þá sparifötum sem aðra helga daga og fellt niður vinnu. Stóráfallalaust komst hann yfir jMóðuharðindin eigi að síður. Bróðir Páls var Gísli hreppstjóri á Nesi í Höfða- hverfi, faðir Ásmundar hreppstjóra á Þverá, föður Ein- ars alþingismanns í Nesi og Gísla hreppstjóra á Þverá föður séra Ásmundar á Hálsi og þeirra bræðra. Ásmundur (f. 1717) afi Þórðar á Kjarna bjó síðast á Nesi í Höfðahverfi en áður á Þverá í Dalsmynni og Gautsstöðum á Svalbarðsströnd. Hann var Gíslason hreppstjóra og sjálfseignarbónda á Gautsstöðum, Sig- urðssonar bónda á Hallgilsstöðum í Fnjóskadal, Jóns- sonar. Kona Ásmundar í Nesi var Ingibjörg Þórðardóttir bónda í Vík á Flateyjardal, Þorkelssonar prests á Þönglabakka, Þórðarsonar. Mun þaðan runnið nafn Þórðar á Kjarna. En móðir Ásmundar, og kona Gísla hreppstjóra á Gautsstöðum, var Herdís Guðmundsdótt- ir bónda á Naustum, Sölvasonar. Guðný móðir Þórðar á Kjarna var dóttir Áma Geirs- fóstra á Vestari-Krókum og síðar á Draflastöðum. Því var hann Geirsfóstri kallaður, að hann hafði fóstrað Geir biskup Vidalín til tólf ára aldurs. Árni var Bjarna- son Indriðasonar, Flóventssonar, Semingssonar Jónsson- ar. Ættgrein hans var kölluð Draflastaðaætt og má rekja gegnum Jón glókoll til Lofts ríka á Möðruvöll- um. Móðir Árna Geirsfóstra var Þuríður dóttir séra Þor- kels á Þönglabakka. Kemur þar saman föður- og móð- urætt Þórðar á Kjarna. Guðný Árnadóttir, kona Páls á Þórðarstöðum, hafði áður verið gift Þórði Björnssyni Þorkelssonar prests á Þönglabakka. Þau höfðu búið fyrr á Vestari-Krók- um, en síðar á Þórðarstöðum. Hann dó miðaldra. Réðst Páll þá til búskapar og hjúskapar með henni. Sonur Guðnýjar af fyrra hjónabandi hét Árni. Hann keypti jörðina Lund í Fnjóskadal þegar jarðir Hólastóls voru seldar um aldamótin 1800, og bjó þar lengi síðan og síðar í Böðvarsnesi. Synir hans voru séra Þorkell í Stöð og Isak snikkari. Systkin Þórðar á Kjarna voru Ásmundur, Guðlaug- ur og Margrét. Ásmundur Pálsson bjó fyrst á Gautsstöðum en síðar í Hvammi í Höfðahverfi. Kona hans var Margrét Sig- urðardóttir, systir Sigurðar borgara á Akureyri. Þau áttu fjórar dætur, sem allar giftust. Guðlaugur Pálsson átti (1802) Björgu Halldórsdótt- ur frá Neslöndum við IMývatn. Þau bjuggu á Sörla- stöðum og áttu sjö börn, sem til þroska komust. Meðal þeirra var Kristján bóndi og smiður í Böðvarsnesi og Kristbjörg, sem átti Jóhannes Friðriksson bónda á Fossi í Vopnafirði. Þeirra sonur var Jón Baldvin, hreppstjóri í Stakkahlíð í Loðmundarfirði. jMargrét Pálsdóttir átti Sigurð Guðmundsson bónda á Snæbjarnarstöðum. Börn þeirra voru Kristján, Guðni, járnsmiður, og Jóhanna, er öll giftust og áttu börn. Sonur Guðna var Jón bóndi á Rútsstaðakoti í Flóa, faðir Ásgríms listmálara. Svo sem rakið er að framan var ætt Þórðar á Kjarna mest um Fnjóskadal og við Eyjafjörð austanvert. Ætt Bjargar á Kjarna var eyfirzk. Hún var fædd í Hólshúsum í Eyjafirði 1779, dóttir Halldórs bónda þar og síðar á Hrísum og Æsustöðum, Björnssonar og Þór- dísar Bjarnadóttur bónda á Stokkahlöðum Sæmunds- sonar. Kona Sæmundar var Helga dóttir Bjarna á Draflastöðum. Korna þar saman ættir Kjarnahjóna. — En móðir Þórdísar konu Bjarna á Stokkahlöðunt var Herdís Jónsdóttir bónda á Hólastekk. Björn í Hólshúsum var Ivarsson, bónda í Lönguhlíð, Björnssonar. En kona Björns í Hólshúsum var Björg (f. 1713) Grímsdóttir bónda í Teigi, Rafnssonar, Árna- sonar bónda í Svellatungu. Heima er bezt 299

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.