Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1960, Qupperneq 15

Heima er bezt - 01.09.1960, Qupperneq 15
hafði færzt á norðurhelming himinsins og skýhnoðrar voru að myndast yfir fjöllunum í suðvestri. Það var ekki álitlegt að halda lengra til djúps. En hins vegar illt að koma heim með „öngulbrot í rassi“. Það varð úr að við tókum örlítinn kipp til norðurs. Og þar urðum við strax varir við sams konar fisk og við fengum daginn áður. Ekki höfðum við dregið nema örfáa fiska er við sá- um að komið var rok norðan við sandinn í fjarðarbotn- inum. Faðir minn lét þegar hafa upp færin og við gripum til ára. Um annað var ekki að gera. Mastrið var bæði hátt og þungt og seglið úr þykkum og þéttum dúk, hvort tveggja gert af dönskum háseta og ætlað að vinna vel í hægum byr, en ekki til að nota það í roki. Brátt skall rokið á okkur og báran óx óðum. Ekkert viðlit var að róa beint í storminn. Báturinn fór strax að höggva illa á bárunni og stormurinn lagðist þungt á árablöðin, er þau komu upp úr sjónum. Faðir minn lét því vindinn koma á stjórnborðskinnung. En þá fór að gefa illa á bátinn, því hann var borðlágur og ágjöfull. Skelltust báruhnyklarnr oft yfir borðstokkinn og skullu á okkur. Kom sér nú vel að Kristján var með okkur. Elann var í skutnum og jós sjónum jafnharðan út. Ekki höfðum við róið lengi er það óhapp henti að tolli brotnaði. Tollarnir voru úr tré, reknir í göt á borðstokknum og léku árarnar, sem voru skautaðar, lausar í ræðunum á milli þeirra. Engin áhöld voru í bátnum til þess að ná brotinu úr borðstokknum og varð faðir minn að telgja til annan tolla og nota sökku til ásláttar er hann rak brotið úr gatinu. Að vísu tók það ekki langan tíma. En á meðan hrakti bátinn, því ræðar- arnir í framræðunum héldu ekki við. Var nú róið af alefli um stund og þokaðist ögn áfram. En þá varð annað óhappið. Arin sem Jón á Fjöllum réri með bil- aði um samskeytin, þoldi ekki átök hans, því hann var mikill ræðari. Kom nú varaárin í góðar þarfir. Rokið hélzt alltaf jafnt. En alltaf smá þokaðist þó áfram. Báran fór smá minnkandi er nær dró landinu og fór þá báturinn að þokast ögn betur áfram. Eftir lang- an og harðan barning náðum við loks landi langt aust- ur á Víkingavatnsreka, norð-austur af Víkingavatni. Er við vorum lentir var ég strax sendur eftir spýt- um er lágu á gíg rétt ofan við sjávarkambinn. Átti að nota þær sem hlunna við setningu bátsins. Ekki tók það nema 4—5 mínútur að sækja þær. En um leið og ég kom aftur niður í fjöruna, skall aðal-stórviðrið á. Gerði þá á augabragði svo mikla sand- og moldarhríð að okk- ur, að í verra hef ég ekki komizt. Og stólparok um allan fjörðinn. Þó að við hefðum ekki verið nema örfáa faðma frá landi, er þetta voða ofviðri skall á, mundum við áreið- anlega ekki hafa náð landi — ekki dregið þumlung í því afspyrnuroki. Með því líka að hin samskeytta árin var að byrja að gefa sig er við lentum. Svo það var reyndar mesta mildi fyrir okkur að hún entist þó þetta. Fárviðri þetta stóð ekki lengi. Mig minnir það væru ekki nema 2—3 klukkustundir. Þá Iygndi snögglega. En ekki nema í svip. Því rétt á eftir gerði aftur rok af norðvestri litlu minna en hið fyrra. Og þótt við hefð- um verið ofan sjávar, á litlu bátskelinni okkar, einhvers staðar norður í flóanum er norð-vestan rokið skall á, hefði ekkert beðið okkar annað en að hrekjast undan storminum í ófæran brimgarðinn við hina útgrunnu og hafnlausu strönd Öxarfj arðar. Þórður Pálsson og Björg Halldórsd. Framhald af bls. 300. .------------ ------------—■ 5. Þórdís (18/1 1807 — 3/8 1869) átti Stefán son séra Baldvins Þorsteinssonar á Upsum. Þau voru laus við og bjuggu víða, Svalbarði á Svalbarðsströnd, Skjald- arvík, Kjarna, Ásláksstöðum, Akureyri og Yztabæ í Hrísey. Dóu bæði á St. Hámundarstöðum hjá Filippíu dóttur sinni og tengdasyni Hallgrími Hallgrímssyni. Höfðu áður skilið samvistir. 6. Sigurbjörg (10/1 1808 — 12/1 1 1852) átti Áma son séra Páls Árnasonar (biskups Þórarinssonar) á Bægisá. Þau bjuggu á Bægisá fyrst en síðan á Syðra- Holti í Svarfaðardal. 7. Ingibjörg (20/9 1810 - 2/8 1872) átti (1841) Andrés Tómasson bónda á Syðri-Bægisá og bjó þar til dauðadags. 8. Þorbjörg (4/1 1 1811 - 30/6 1887) átti (1841) Stefán Gunnarsson bónda í Stakkahlíð (bróður séra Sigurðar á Hallormsstað). Þau bjuggu þar til æviloka. 9. Björg (1/10 1813 - 31/5 1900) átti (1838) Jón timburmann Jónsson frá Kristnesi. Þau bjuggu síðast á Tjörn á Skagaströnd en áður á Vatnsdalshólum og Miðhúsum í Þingi. Og þar andaðist faðir hennar sem fyrr segir. 10. Aðalbjörg (2/11 1814 — 18/6 1861) giftist ekki, dó hjá séra Benedikt bróður sínum á Brjánslæk. 11. Jón (2/11 1814 — 15/12 1854, tvíburi við Aðal- björgu) lærði silfursmíði, átti Þóru Katrínu Eyjólfs- dóttur prests Kolbeinssonar, síðast á Eyri í Skutuls- firði. 12. Kristbjörg (6/11 1818 — 21/5 1908) átti fyrr (1841) Metúsalem sterka Jónsson bónda í Möðrudal (d. 15/5 1850) síðar séra Pétur Jónsson á Valþjófsstað. 13. Kristjana Guðbjörg (4/7 1820 — 12/10 1882) átti fyrr (3/9 1842) Þorgrím Stephensen bónda á Korp- ólfsstöðum, síðar Kristján Þórðarson bónda í Holti á Barðaströnd. Nú um miðja 20. öld, þegar þetta er tekið saman, munu niðjar Kjarnahjóna vera komnir í allt að 6. lið og núlifandi afkomendur skipta hundruðum. Þeir eru dreifðir um land allt og margir búsettir einnig Vestan- hafs. Heima er bezt 303

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.