Heima er bezt - 01.09.1960, Blaðsíða 25
Vertu’ ekki að horfa svona alltaf á mig,
ef þú meinar ekki neitt með því.
Ef lagleg mey mig lítur á,
ég litið get ekki‘ upp og roðna alveg nið‘r í tá.
Og ef ég verð í einni skotinn,
ég aldrei þori að segja nokkurt orð.
En leynda ósk ég ætla að segja þér
að þú viljir reyna að kenna mér.
Því ertu að horfa svona alltaf á mig,
ef þú meinar ekki neitt með því.
Lengi hefur það dregizt hjá mér að birta hér ljóðið
Saga farmannsins, sem Óðinn Valdimarsson syngur.
Höfundur ljóðsins er hinn góðkunni ljóðasmiður, Jón
Sigurðsson.
Ég er á förum til fjarlægra landa
að finna mér meyjar og gull.
Utþráin seyðir mig út yfir höfin,
ekkert mig bindur og pyngjan er full.
Veit ég að bíður mín gæfa og gengi
glaður nú kveð ég og held svo af stað.
Farlægðin heillar og huga minn bindur
hvað sem ég reyni ég óttast ei það.
Skipið er ferðbúið, fljótt nú af stað
förum við út yfir sjá.
Sjórinn er sléttur
og ég er svo léttur,
ég einn gæti svifið um heiðloftin blá
því ég má
fara um heiminn til fjarlægra landa
finna þar ástir og meyjar og gull.
Utþráin seyðir mig út yfir höfin,
ekkert mig bindur og pyngjan er full.
Sit ég á ströndu hjá suðrænni meyju
svört eru augun sem heimskautanótt.
Pálmarnir vagga í vornæturblænum,
víst er að hjarta mitt slær ekki rótt.
Seinna í vestri ég gref eftir gulli
get orðið ríkur ef heppnin er með,
en ef það bregzt er ég alls ekki hryggur,
ég þaðan renni og margt getur skeð.
Ef til vill skrepp ég svo austur til Kína,
allt er mér fært, ef ég reyna það vil.
Ef eitthvað mistekst, ég óðar er þotinn,
eftir ég sorgir á leið minni skil.
Svo þegar hárin á höfðinu grána
held ég til norðurs á leið yfir sæ,
þangað sem löngum í lautu í túni
lék ég mér drengur á svolitlum bæ.
Skipið er ferðbúið, fljótt nú af stað,
förum við heim yfir sæ.
Sjórinn er sléttur
og ég er svo léttur,
ég einn gæti svifið um heiðloftin blá
því ég má
finna það aftur sem áður ég átti
eiga þar hvíld þegar hár verða grá.
Sitja í lautu í laufgrænu túni,
láta mig dreyma um það er ég sá.
Enn verður margt af umbeðnum Ijóðum að
bíða birtingar.
Stefán Jónsson.
Bréfaskipti
Anna Gréta Arngrimsdóttir, Sandá, Svarfaðardal, Eyja-
fjarðarsýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum
16-30 ára.
Þormóður Einarsson, Geithellum, Álftafirði pr. Djúpavogi,
S.-Múl., óskar eftir að komast í bréfasamband við stúlkur á
aldrinum 20—25 ára. Óska að mynd fylgi.
Guðmunda Pétursdóttir, Geithellum, Alftafirði, pr. Djúpa-
vogi, S.-Múl., óskar eftir að komast í bréfasamband við pilta
eða stúlkur á aldrinum 16—20 ára. Óska að mynd fylgi.
Guðrún Rósa Lárusdóttir, Þverá, Svarfaðardal, Eyjafjarðar-
sýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilt eða stúlku á aldrinum
10—12 ára. Mynd fylgi.
Elín Guðmundsdóttir, Bæ, Súgandafirði, óskar eftir að
komast í bréfasamband við pilt og stúlku á aldrinum 13—15
ára.
Þorbjörg H. Grimsdóttir, Brúsastöðum, Þingvallasveit, Ár-
nessýslu, óskar að komast í bréfasamband við pilt eða stúlku
á aldrinum 13—16 ára. Mynd fylgi.
Hildigunnur Jóhannsdóttir, Geitafelli, Vatnsnesi, V.-Hún.,
óskar eftir bréfaskiptum við stúlku á aldrinum 19—20 ára.
Mynd fylgi.
Sólveig Arnadóttir, Gnýstöðum, Vatnsnesi, V.-Hún., óskar
eftir bréfaskiptum við pilt eða stúlku á aldrinum 13—14 ára.
Mynd fylgi.