Heima er bezt - 01.09.1960, Side 27

Heima er bezt - 01.09.1960, Side 27
— Ég get ekki lýst þeirri gleði, sem þá bjó í hjarta mínu. Mér fannst Gunnar minn vera orðinn svo líkur því, þegar hann var góður og saklaus drengur heima hjá mér forðum. En svo var hann kallaður á sjóinn aftur. Hann kvaddi mig aldrei eins innilega, og þegar hann fór í það skiptið. — Ég verð hjá þér um jólin, mamma mín, sagði hann síðast að skilnaði. Og svo fór hann. — Ég fór nú að undirbúa jólahátíðina, eins og ég hafði bezt tök á. í þetta sinn átti ég mikla gleði í vænd- um samfara mínum barnslega jólafögnuði, að hafa drenginn minn hjá mér á hátíð ljósanna. Ég keypti smá jólagjöf handa Gunnari mínum, sem hann átti að fá á jólakvöldið, eins og þegar hann var lítill drengur. — En svo var það daginn fyrir Þorláksmessu, að barið var að dyrum hjá mér. — Skyldi Gunnar minn vera kominn heim, flaug mér fyrst í hug, og ég hrað- aði mér til dyranna. En það var ekki Gunnar minn, sem stóð fyrir utan dyrnar, heldur ókunnugur maður, sem ég hafði aldrei séð áður. Hann heilsaði mér með hlýju handabandi og kynnti sig og sagðist vera sóknar- prestur minn. En hann þurfti ekki að segja mér meira. Það var eins og ég vissi þegar erindi hans. — Hefur eitthvað komið fyrir? spurði ég. — Já, svaraði hann með hægð. — Er Gunnar minn dáinn? — Já, — hann féll út af togaranum og náðist ekki aftur. — Blessaður presturinn ætlaði að segja eitthvað meira við mig, en ég beið ekki eftir því, þakkaði hon- um fyrir komuna og hvarf síðan aftur inn í bæinn minn. — Það urðu dapurleg jól hjá mér að því sinni, en ég vissi að Guð hafði tekið Gunnar minn heim í sitt eilífa jólaljós, og þar átti ég hann, og í þeirri trúar- vissu varð sorg mín að svalandi uppsprettulind. Ég bað fyrir drengnum mínum í helgi jólanna, og vissi að bænir mínar voru heyrðar. Nú á ég engan ástvin eftir hjá mér í þessum heimi, sem ég get náð til. Og þetta er aðalþráður lífssögu minnar. — Signý þagnar. Frá- sögn hennar er lokið. Frú Eygló hefur hlustað í djúpri samúð á frásögn gömlu konunnar, og hún hefur þegar ákveðið, á hvern hátt hún ætlar að sýna henni samúð sína í verki. En áður en hún ræðir það mál við Signýju, þarf hún að tala við mann sinn. Hún ætlar því ekki að tefja lengur hjá gömlu konunni að þessu sinni, heldur koma mjög bráðlega til hennar aftur. Frú Eygló heldur enn um hönd Signýjar og þrýstir hana innilega. Hún rýfur nú þögnina og segir: — Ég þakka þér það traust, sem þú hefur sýnt mér, Signý mín. Lífssaga þín hefur snert mig djúpt, og mig langar til að sýna þér það í verki. Má ég koma til þín bráðlega aftur? — Máttu koma? Já, víst ertu velkomin, hvenær sem er. — Ég þakka þér fyrir það. En ég ætla þá ekki að tefja lengur að þessu sinni. — Þú drekkur hjá mér kaffi, það er sjálfsagt farið að sjóða á katlinum frammi. — Þá vil ég helzt drekka kaffið í eldhúsinu hjá þér, um leið og ég fer, má ég það ekki? — Jú, góða mín, fyrst þú ert svo lítillát. Þær rísa báðar á fætur, og frú Eygló fylgist með Signýju fram í eldhús. Þar sýður á katli yfir lítilli elda- vél. Gamla konan býður gestinum sæti við eldhúsborð- ið, og frú Eygló sezt. Síðan lagar Signý kaffi í flýti og tekur fram bolla og sykurkar, sem hún ber á borð fyrir gestinn. — Ætlar þú ekki að drekka mér til samlætis, Signý mín? spyr frú Eygló glaðlega. Gamla konan brosir. — Ég á ekki til nema einn bolla, en ég fæ mér kaffisopa á eftir. Hún hellir í bollann handa gesti sínum, og frú Eygló drekkur kaffið með beztu lyst. Svo rís hún á fætur og þakkar gömlu kon- unni fyrir góðgerðirnar. Nú ætlar hún ekki að tefja lengur. Signý fylgir gesti sínum út á hlað, og þar kveður frú Eygló gömlu konuna með handabandi og hlýjum kossi á vanga. Síðan hraðar frú Eygló sér á brott, en gamla konan stendur kyrr á hlaðinu um stund og horfir á eftir henni klökk af gleði. Það hefur áreiðanlega ekki verið nein tilviljun, að þessi ókunnuga kona skyldi koma svo óvænt til henn- ar. Guð hefur vissulega stýrt göngu hennar heim að litla bænum. Og gamla konan hlakkar innilega til þess að sjá þessa góðu, ókunnu konu aftur. Séra Ástmar situr einn í skrifstofu sinni og vinnur að embættisstörfum sínum. Honum er farið að þykja fjarvera konu sinnar óvenju löng, en hann veit að hún fór í heimsókn til vinkonu sinnar, og að slík ferðalög taka oft langan tíma. Hann hagræðir sér í stólnum og keppist við áríðandi skýrslugerð. Brátt opnast skrifstofudyrnar að baki séra Ástmars, og kona hans kemur inn í stofuna, rjóð af göngu og broshýr á svip, með hárið döggvott af vorregni. Frú Eygló gengur að hlið manns síns, nemur þar staðar og leggur arminn um herðar hans. — Sæll vinur minn, segir hún blíðlega. — Fyrirgefðu, er ég að gera þér ónæði? Séra Ástmar ýtir þegar frá sér verkefni sínu og snýr sér að konu sinni. — Sæl, elskan mín. Nei, þú gerir mér ekkert ónæði. Ég hef semsagt alveg loldð við skýrslugerðina. Það var gott að sjá þig aftur. Frú Eygló brosir. — Var þér farin að leiðast einveran? — Já, sannarlega. Hann brosir líka. — Svona er ég nú eigingjarn, vil helzt alltaf hafa þig hjá mér. — Það er mér einkar kær eigingirni, vinur minn. En það var sérstök ástæða fyrir því, að ég var svona lengi að heiman í dag, og ég þarf helzt að segja þér hana strax, ef þú mátt vera að því að hlusta á mig. Heima er bezt 315

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.