Heima er bezt - 01.04.1964, Blaðsíða 5

Heima er bezt - 01.04.1964, Blaðsíða 5
Stórholt. Theódór, Benna, Ella, Prill og Guðbjörg (19S>6). rúmlega áttræðan spöl, kíkja vfir lífs- og starfssvið í fljótheitum. Auðvitað verður hér ekki um tæmandi yfirsýn að ræða, til þess skortir mig rithæfni, og til þess er heldur ekki rúm á þessum vettvangi. En lífs- starf unglingsins, er ólst upp í örlitlu smáþorpi við Hrútafjörðinn við afgreiðslu- og verzlunarstörf, en varð síðan einn atorkusamasti bóndi í Dölum vestur, auk yfirgripsmikilla félagsstarfa í sveit og héraði, er vel þess virði að eyða með honum lítilli stund til þenkinga os; náms. Guðmundur Theódórs er fæddur að Borðeyrarbæ við Hrútafjörð 11. desember 1880. Foreldrar hans voru hjónin Theódór Olafsson, verzlunarstjóri á Borðeyri, Pálssonar, dómkirkjuprests í Reykjavík (en kona Olafs var Guðrún Olafsdóttir, dómsmálaritara í Viðey, Step- hensen), og kona hans, Arndís Guðmundsdóttir, pró- fasts að Melstað, Vigfússonar. Ættir Guðmundar eru merkar og landskunnar og því ekki raktar hér nánar. Þegar snáðinn var á fyrsta árinu, vorið 1881, fluttust foreldrar hans til Borðeyrarkauptúns, en þar hafði faðir hans tekið við verzlunar- og bókhaldsstörfum hjá Clau- sens-verzlun. Tíu árum síðar varð hann (Theódór) verzlunarstjóri hjá R. P. Riis, er um langt árabil hafði aðalverzlun þar á Borðeyri. Heimili Arndísar og Theódórs var annálað á margan hátt og átti meiri og almennari vinsældum að fagna en aimennt gerðist á þeim árum meðal hinna svokölluðu „betri“ heimila. Þar var gestrisni óvenju ríkuleg, og var þó ekki við smátt að jafna í viðkomandi byggðarlög- um. Yfir heimilislífinu var bjart og létt, gamanyrði og glettni gáfu andrúmsloftinu ferskan blæ, og söngurinn réði þar ríkjum. Bæði foreldrar og börn voru söngvin og söngelsk og oft var tekið lagið, hvort sem gestir voru komnir eða ekki. Á þennan hátt sérstaldega skar heimilið sig úr, því lítt fór fyrir söng og hljóðfæraslætti um þessar sveitir, fyrir um það bil 60 til 70 árum. Þessi heimilisblær, ásamt festu, traustleika og strang- ieika „gamla og góða tímans" mótuðu skapgerðina jöfn- um höndum til gleði og alvöru, skópu uppeldisáhrif er entust langa ævi. (Mér er vel kunnugt um heimilið frá þessum árum, því móðir mín, sem var Hrútfirðingur að ætt og uppeldi, var hjá þeim hjónum Arndísi og Theódóri um nokkurra ára bil, um og eftir tvítugsald- urinn. Minningar frá þeirn árum rifjaði hún oft upp. Það var hennar bezti, og raunar eini, skóli, og þar drakk hún í sig lífsviðhorf, sem treindist henni alla leið.) (Enn má þess geta, að öðru hvoru, fyrir 20 til 35 ár- um, var sá er þetta ritar heimagangur á Blönduósi hjá svstkinum Guðmundar, en þau voru Pétur, kaupfélags- stjóri, Lára og Finnbogi, verzlunarmaður, er þá voru öll búsett á Blönduósi. Heimilið var mér eins og for- eldrahús, og þegar búið var að stjana við mig, líkt og eins konar týndan son, settist Lára við orgelið, en Finn- bogi hóf upp sína voldugu rödd. Hefði hann átt þess kost, að komast í snertingu við hinn stóra heim og num- ið söng á þeim vettvángi, myndi hafa komið í ljós hetju- tenór á heimsmælikvarða. í þess stað fékk ég, — og vitaskuld margir aðrir, að njóta söngsins unaðsmála með honum hér heima á gamia Fróni.) Ekki var um fjölbreytt félagslíf að ræða þar í Hrúta- firðinum um þessar mundir, frekar en annars staðar í sveitum landsins. Þó voru blessaðir klárarnir, og skóp Guðmundur Theódórs að störfum ásamt tveim þörfustu þjón- unum. Heima er bezt 137

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.