Heima er bezt - 01.04.1964, Blaðsíða 10

Heima er bezt - 01.04.1964, Blaðsíða 10
maður þess við vöruafgreiðslu um 40 ára skeið. (Kaup- félagið hafði þá verzlun sína að Salthólmavík, í þröng- um og óhægum húsakynnum. Sölubúð var þá oftast opin aðeins einu sinni í viku, og jafnan nóg að gera daginn þann. Sá er þetta ritar kom þá einn góðan veð- urdag í búðina og hafði ekki kornið þar áður. Búðar- kytran var auðvitað full af fólki, en Guðmundur einn við afgreiðsluna. Þá sá ég það, er ég hafði ekki séð áð- ur: Guðmundur afgreiddi sem sé hóp manna í einu, og hafði margar nótubækur opnar til innfærslu. Sýnilega kunni maðurinn enn sín æskustörf til fullnustu. Það var einmitt þá, sem ég var greinilegast minntur á hina gömlu, vígfimu kappa í fyrnsku, er sýndu mörg vopn- in á lofti í einu. Hér voru það bara hröð og örugg handtök og lítið ritblý, er uslann gerðu. Ég hefi aldrei séð svo hraða afgreiðslu, það sem mín kynni ná. Sá er næst hefur komizt, var Hendrik á Borðeyri, bróðir Guðmundar. Sýslunefndarmaður fyrir sveit sína var Guðmundur yfir 40 ár og endurskoðandi sparisjóðs Dalasýslu rúm- lega síðasta aldarfjórðunginn — og er það enn. Guðmundur hafði yndi af ferðalögum um sveitir landsins og þá auðvitað og aðeins á góðhestum. Því var það, að hann gaf sér tíma til þess, mitt í önnum vors eða sumars, að vera fylgdarmaður biskups, er þá var dr. Jón Helgason. Ferðaðist hann með biskupi um Dala- sýslu alla, Mýra- og Borgarfjarðarsýslur, Strandasýslu, Húnavatnssýslur báðar, allt norður í Skagafjörð. Tók þetta hluta úr sumri í nokkur ár og skildi eftir góðar minningar um skemmtilegar ferðir og samferðamenn, um leið og það veitti fjölþætt kynni af bændum og búaliði í þessum byggðarlögum og yfirsýn og fræðslu um búnaðarháttu og önnur áhugamál. Elinborg Pálsdóttir, fyrri kona Guðmundar, var ágæt- iskona og fyrirmyndar húsmóðir, fríð kona sýnum og á yfirbragð, og hafði óvenju fágaða og prúða fram- göngu, enda sórndu þau sér vel saman hjónin. Þau voru heilstevptir fulltrúar sinnar stéttar, hvort í sínu lagi — og einnig sameiginlega, bóndi og húsfreyja er byggðu upp höfuðból frá grunni. Og gott var unglingi að gista að þeirra, það þekkir sá bezt, er þetta ritar, enda mun það og einmæli allra þeirra, er þar nutu gistivináttu. En strangur reyndist þeim skóli lífsins, þrátt fyrir trausta atorku, trúnað í störfum, óbrotgjarnan kjark og ást- ríka sambúð. Hvíti dauðinn var stórhöggur á þeim árum. Barátt- an gegn honum var nýlega hafin fyrir alvöru, en ár- angurinn sorglega hægfara. Þau lvf, er stærsta hafa sigr- ana unnið í þeirri baráttu, voru þá ókunn í heimi hér. Af níu börnum þeirra hjóna urðu sex að lúta þessum ógnvaldi. Og í nóvember 1929, eftir 26 ára hjónaband, féll Elinborg einnig í valinn. Hún hafði lokið dagsverki er var stærra en stórt á venjulegan, mannlegan mæli- kvarða. Síðari kona Guðmundar var Guðborg Ingimundar- dóttir frá Staðarhóli, Jónssonar, er einnig var nierk kona, en hún lézt eftir skamma sambúð þeirra hjóna. Skuggarnir voru oft dimmir. Ef til vill hefðu sumir lagt árar í bát. Guðmundur Theódórs er mjög tilfinn- ingaríkur maður, vinheill og vinfastur. Því strangara var að standa í raunum sem þessum. Heilsteypt skap- gerð, þanþol, sem svignar, án þess að brotna, lífstrú, er ekki verður slökkt, og starf, ef til vill fyrst og fremst starf, framlag í þjónustu lífsins og gróandans, máðu skuggana, rufu skýin. Þess vegna sá Guðmundur löng- um til sólar — og sér enn, sem betur fer. — Gull pró- fast í eldi. — Deigla lífsins villir aldrei á sér heimildir, — gullið skírist. Börn þeirra Guðmundar og Elinborgar, sem lifa, eru: Ingibjörg, hefur verið vanheil að miklu leyti allt frá bernsku; Páll, bóndi og hreppstjóri í Stórholti; Arndís, húsfreyja í Litla-Holti. Systursonur Guðmundar, er einnig heitir Guðmundur, ólst einnig að öllu leyti upp hjá þeim hjónum. Foreldrar hans voru Ágúst Blöndal og Olafía Theódórs. Guðmundur flutti að Stórholti sem leiguliði. En 2—3 árum eftir að hann hóf þar búskap, keypti hann jörð- ina. Síðar keypti hann svo einnig Litla-Holt, en það liggur fast að Stórholti, svo að túnið á báðum jörðun- um er innan sömu girðingar. Þegar svo fóstursonur hans, Guðmundur Blöndal, kvæntist og hóf búskap, byggði fóstri hans honum Litla-Holtið, og þar bjó hann í 17 ár. Hann er nú fulltrúi á Skattstofu Akureyrar. Kona Guðmundar er Anna Olafsdóttir frá Ytra-Faara- dal, Indriðasonar og konu hans, Guðrúnar Lýðsdóttur. Börn þeirra eru: Guðborg, Friðrik Theódór og Ólafía Guðrún, öll uppkomin og búsett á Akureyri. Síðan árið 1952 hefur Arndís dóttir Guðmundar ver- ið húsfreyja í Litla-Holti. Hún er gift Guðmundi M. Guðmundssyni, Guðbjörnssonar frá Suðureyri við Súg- andafjörð, og konu hans, Maríu Jóhannesdóttur. Börn þeirra eru: Hólmfríður Inga og Guðmar Finnur, en eldri sonur Arndísar er Guðmundur Borgar Skarphéð- insson. Litla-Holtið er nú eignarjörð þeirra hjóna. Þau búa þar farsælu búi, og afi í Stórholti þarf ekki að fara nema mjög skamman stekkjarveg til að heilsa upp á dótturbörnin. Mér virtist að bæði híbýli og heimafólk Ijóma við Guðmundi, þegar ég leit þar snöggvast inn á síðastliðnu vori, ásamt honum. Fyrir urn það bil 20 árum hætti Guðmundur búskap í Stórholti, en Páll sonur hans tók við. Að sjálfsögðu dvaldi hann þar áfram og dvelur enn, og lagði hönd á plóg eftir þeim kringumstæðum er kölluðu að hverju sinni eða þrek leyfði. Og ekki hefur landnámsmaðtir- inn þurft að hafa áhyggjur af því, að ekki væri haldið í horfinu, að kyrrstaða tæki við, þótt stjómvölurinn væri lagður í hönd sonarins, að áhugaleysi eða hörfun gægðust um gættir, þar sem áður stóð vökumaður á verði. Nei, ung og hraust hönd tók við af hinni lúðu og þreyttu. Heilshugar hefur Páll framhaldið starfi bóndans í ræktun, bættum húsakosti og afurðaaukningu. Um árangur verður ekki efað, því sennilega er nú í Stórholti stærsta bú í Dölum og afurðamesta. Starf Framhald á bls. 144. 142 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.