Heima er bezt - 01.04.1964, Blaðsíða 18

Heima er bezt - 01.04.1964, Blaðsíða 18
hún þarf að fullkomnast með því að berjast við efa- semdir og hindranir eða mótspyrnur, þá má ekki ætl- ast til þess, að alfaðirinn leiði okkur fyrirhafnarlaust að ljósi sannleikans og þess, sem réttast er, heldur í gegn- um eyðimerkur óvissunnar, efasemda og tálmana. Frumvarp það, sem komið er að sunnan frá M. Gríms- syni sem ábyrgðarmanni,* er að vonum bergmál af stjórnarlögum Dana, en eigi að síður er það þó gott til að byrja með, því einhverjir hljóta þó að verða fyrstir til að ýta á flot eða ríða upp vaðið á ánni, einasta að ekki yrði heima í héröðum haft of mjög tillit til þess í sumum greinum, og sér í lagi meðan ekki er komið frumvarpið frá stjórninni. Seint koma skipin til vor í ár með það eins og ann- að, og hindrað þau mótviðrin og hafísinn. Ekki er gleðilegt að frétta frá Danm. um ófriðinn og ekki sýnt, hvenær honum linnir. Hvemig gengur með að fá fé til prentsmiðjustofn- unarinnar í Fljótum? Ég býst við, að það gangi dauf- lega, því flestir eru fátækir og hafa þess utan nógum þörfum að sinna; en af því að ég álít prentsmiðjuna andlega nauðsyn okkar og undireins ekki ókljúfanda að koma henni upp, þá hygg ég það ekki nema fjöður af fati hvers eins, þótt ekki gæfi nema 8—12 eða 16 sk. — gott hvað meira, aðeins gjörðu það allir, sem einhverra fémuna era ráðandi. Ég vona, að þér allareiðu eða bráðum heyrið bréf hjá sýslum. birt á þingum um prentsmiðjuna, og ég bið yð- ur á allar lundir að mæla sem bezt getið fram með á- formi þessu í hrepp yðar ásamt með föður yðar og prestunum. í Hvanneyrarsókn hefur prentsmiðjan fengið æski- legustu viðtökur, og er það mikið að þakka ötulli fram- göngu sra. Jóns. Fyrir norðan hefur prentsmiðju verið gefinn góður rómur, einkum síðan bréfið til sýslum. varð heyrinkunnugt, sem ég skyldi hafa sent yður núna, ef tími hefði leyft. — Skúlesen** hefur gefið 5 rd. og seinna gefið von um að bæta við 10 rd. Apótekarinn hér 10 rd., sýslum. E. Briem 10 rd., assessor Jónassen 5 rd. og svo frv.*** Hvernig lízt yður á, að vér Norðlendingar og Múla- sýslumenn leggjumst allir á eitt með að fá, að Alþingi væri haldið hér á Friðriksgfáfu] að öðrum þræði við í Rv. eða á Þingvöllum? Með þessu móti hygg ég mundi almennari not af þinginu en ella. — Sumir vilja og fá hér settan lærðan skóla og biskup. Eíklega hefur það og komið til umræðu, hvort allar kirkjur á landinu ættu * Hér mun átt við sr. Magnús Grímsson, stórmerkan mann, er lézt ungur. ** Hér mun átt við Sigfús sýslumann Schulesen á Húsavík. *** Apótekarinn: Oddur Stefánsson Thorarensen (eldri), sonur Stefáns amtmanns Þórarinssonar. Fyrsti lyfsali á Akur- eyri (f. 1797, d. 1880). Jónassen: Þórður Jónasson, síðar dóm- stjóri, settur amtmaður nyrðra eftir lát Gríms amtmanns 1849, unz embættið var veitt Pétri Havsteen. — K. B. ekki’að eiga einn sjóð og hver um sig að byggjast og viðhaldast upp á hans reikning. Fyrirgefið samtíninginn og flaustrið. Heilsið alúð- legast frá mér yðar elsk., góðu konu. Ykkur með ná- komnustu óskar æ hins bezta skuldbundinn heiðrari ykkar og vinur Björn Jónsson. (Framhald í næsta blaði.) Blessuð sértu sveitin mín .... Framhald af bls. 147. ------------------------------ Jón var fjármaður góður og hestamaður mikill. Atti hann fallegt fé og góða hesta. Oft fylgdi hann ferða- mönnum yfir Jökulsá, og þágu gestir góðgerðir, sem húsfreyja framreiddi af rausn og myndarbrag. Engum, þótt ókunnugur væri, duldist að Jón var maður, sem óhætt var að treysta bæði til fylgdar yfir stórfljót og í öðru, enda hlekktist honum aldrei á. Sigurður og Stefán eru nú komnir nokkuð á áttræðis- aldur, og eru hressir og kátir, en Jón er á níræðisaldri, og er enn beinn í baki, hress og gamansamur, minnug- ur á hðna tíð og sækir mannfundi. Mikill er munur á ævi og aðbúnaði kvennanna í Lóni nú eða var fyrir 50 árum. Þá stóðu þær við hlóðirnar í eldhúsinu, rauðeygðar af reyk og svælu. Húsakynnin köld og léleg og hripláku í rigningum, svo að oft varð að breiða verjur yfir rúmin í baðstofunum. Þá mjólk- uðu konumar kýrnar, og stóðu á blautum engjum oft ófrískar og kvörtuðu ekki. Nú eru Aga- eða gljákola- vélar á hverjum bæ, allt hey fengið af ræktuðu landi og húsakynni víðast góð. Fyrir mitt minni gerðist það, að ung hjón, Jón Mark- ússon og Valgerður Ólafsdóttir fluttu úr Lóni inn í Eskifell og reistu þar bú. Það liggur inni í Stafafells- fjöllum um þriggja tíma lestaferð frá Stafafelli, sem er næsti bær. Aldrei hafði verið búið þar áður. Þau hjón- in voru dugleg og kjarkmikil. Sagt er, að þau hafi átt einar 20 kindur, er þau fluttu inn eftir. Svo er sagt, að þegar þau voru að byggja þar fjárrétt, hafi Jón viljað hafa hana litla, en konan hafa hana stóra og réð hún því, sagði hún sem svo, að einhvern tíma yrði réttin ekki of stór. Þetta rættist, því þau hjón efnuðust vel, og fyllti fé þeirra réttina, og tók hún þó 500 fjár. Læt ég svo staðar numið með þeirri ósk, að sveitin mín, Lónið, fari aldrei í eyði, til þess er hún of gæða- mikil og fögur. 20. febrúar 1961. 150 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.