Heima er bezt - 01.04.1964, Blaðsíða 7

Heima er bezt - 01.04.1964, Blaðsíða 7
unartíma sölubúða, vinnubrögð með nokkuð öðrum hætti en nú er og „aktaskrift“ í vinnu óþekkt fyrir- brigði. Þetta var skemmtilegur árstími þeim Borðeyringum, þrátt fyrir önn og strit, ekki sízt fyrir fjöruga og glað- sinna æskumenn, er höfðu augu og eyru opin fyrir þeim áhrifum, sem óumflýjanlega hlutu að fylgja þessari innrás, þótt vopn væru engin á lofti. Þarna komu stórbændur með 10 til 12 hesta undir ullarklyfjum og aðrir smærri, allt niður í smælingja með 1 eða 2 hesta, þarna voru vinnumenn með hárið af sín- um skjátum og þarna voru stráklingar með upptíning- inn sinn, — fyrir hann mátti þó alltaf fá laglegan sjálf- skeiðung, eitthvað gott úr búðinni, kannski rósóttan klút fyrir mömmu eða litlu systur. Og loks voru hér oft ýmsir kúnstugir karlar, skrítnir í orðum og hátt- um, er skópu sérstök áhrif, framkölluðu sérstæðan lit- blæ á þennan annaríka árstíma, þegar allt var á ferð og flugi. Ekki má heidur gleyma kvenþjóðinni: virðuleg- um maddömum, ráðsettum bændakonum, ungum konu- efnum, sem voru kannski að reyna að reita eitthvað saman í upphaf að væntanlegri búslóð, og síðast en ekki sízt ungum heimasætum, misjafnlega laglegum að vísu, en þó ungar og ferskar og hæfilega feimnar, með for- vitin augu og spurul, er sögðu minna en þau varðveittu, — hin leyndu, en þó sýnilegu vopn ungrar konu. Já, mikið var að gera, í mörgu að snúast, enda kom margt af þessu fólki aðeins í kaupstaðinn einu sinni á ári, þar á meðal meiri hluti kvenfólks og unglinga. Og framsýnar þurftu blessaðar húsmæðurnar að vera, ef ekkert átti að gleymast, er nota þurfti kannski heilt ár fram í tímann. Aður en sá hæfileiki fékk tækifæri að sýna sig, þurfti kaupmaðurinn að vera búinn að beita honum. Búhyggja í innkaupum hans var sú stoð, er allt valt á nú. Og bændurnir komu með kútholurnar sínar. Sumir þurftu raunar stærri ílát, enda var brennivínið talið sjálfsagður hlutur í kauptíðinni. Þarna fengust vmsar víntegundir, en mest var keypt af brennivíninu. Þriggja pela flaskan kostaði þá 68 aura, potturinn 90 aura. Og auðvitað var hægt að fá eitt og eitt staup, svona til hressingar í dagsins önn. Margir voru góðglaðir, en al- mennt fyllirí ekki algengt, og heimamenn, þ. e. Hrút- firðingar sjálfir, sáust sjaldan ölvaðir að ráði þar á Tang- anum, en svo var Borðeyri jafnan nefnd í daglegu tali, og er raunar enn af sumum. Sem dæmi um það, er hér hefur verið nefnt í sam- bandi við fjölda aðkomumanna, má geta þess, að þeir bræður, Theódórssynir, ætluðu eitt sinn að telja að- komuhestana. Ekki gekk það vel. Þeir tólcu þá þann kostinn að telja gráu klárana í hópnum og reyndust þeir vera 140 talsins. Þarna hafa því verið samankomnir nokkuð mörg hundruð hesta, jafnvel þótt svo kunni að hafa hitst á, að Dalamenn hafi verið í meiri hluta þann daginn. í Dölum voru nefnilega þrír—fjórir stórbænd- ur, er létu þá sérvizku eftir sér, að eiga alla sína hesta gráa eða hvíta að lit, — töldu það búhyggju, ef finna Guðmundur Thendórs. þurfti gripina í myrkri. Auðkenndir voru þeir líka, þar sem þeir voru séðir á ferð, og myndarbragurinn auð- sær. Þannig er þá mjög lausleg mynd þess starfslega ak- urs, sem Guðmundur er sprottinn upp af. Vafalaust lá það opið fyrir honurn að helga sig verzlunarstörfum ævilangt. Hvað sem því líður, eftir 14 ára starf á Borð- evri brevtti hann sér í bónda og var þá á tuttugasta og J J O I o o fjórða árinu. Börnin í Stórholti: Jón Brands og Páll litli Theódórs. Heima er bezt 139

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.